- Eru til rök fyrir því að ég sé ekki sveppur?
- Hvað gerist ef ég tek smurða brauðsneið, festi hana við bakið á ketti og kasta honum upp í loft?
- Er ekki áhyggjuefni að krónan falli svo hratt að svarthol myndist sem eyði jörðinni; svona eins og þeir höfðu áhyggjur af í Sviss?
- Átti David Hasselhoff einhvern þátt í falli Berlínarmúrsins eins og hann heldur sjálfur fram?
- Ef maður gleymir sér, þarf maður þá ekki að snúa við og ná í sig?
- Hefur það einhvern tíma komið fyrir að maður hafi dáið ráðalaus?
- Af hverju velja lögfræðingar sér oftar en aðrar starfsstéttir brúna skó í stað svartra við dökk jakkaföt?
- Hvar er mest af geimskipum á Íslandi?
- Ef ég diffra vin minn og tegra hann svo, verður hann þá með fasta C eftir tegrunina?
- Tala kindur fjármál?
- Eru Maríutásur tærnar á Maríu?
- Er ekki vonlaust fyrir Íslendinga að svara þessum 2500 spurningum til að komast í Evrópusambandið?
- Hvar liggur hundurinn grafinn?
- Hvert er næringargildi manneskju?
- Er jörðin flöt?
- Er vitað hve mörg prósent þjóðarinnar horfir á Eurovision?
- Hvaða rannsóknir hafa farið fram á orsökum þess að sokkar hverfa stundum í þvottavélum?
- Hver er þessi frú í Hamborg og af hverju er hún að gefa okkur peninga?
- Hver stal kökunni úr krúsinni í gær?
- Er hægt að hlaupa hraðar aftur á bak en áfram?




