Spurning
Hver stal kökunni úr krúsinni í gær?
Spyrjandi
Alexander Briem, f. 1990
Svar
Kökurannsóknardeild Vísindavefsins fékk nafnlausa ábendingu um að köku hefði verið stolið úr krús í gær! Málið er grafalvarlegt og okkar fyrstu viðbrögð eru þau að setja á laggirnar rannsóknarnefnd. Nefndin er skipuð til þriggja ára og í henni sitja valinkunnir bakarameistararar. Forseti nefndarinnar er Hérastubbur bakari. Nefndin hefur þrjú meginhlutverk. Henni er ætlað að:- Skrifa 30.000 síðna skýrslu í fjórum meginköflum, um hefun gerdeigs, um loftbólur í kökudeigi, um útþenslu piparkökunnar á heitri bökunarplötu og um piparkökuhúsið sem varð að engu. Talið er að skýrslan eigi eftir baka ýmsum mikil vandræði.
- Gefa út matreiðslubók með 17 nýjum smákökuuppskriftum sem nýtist öllum heimilum í landinu. Uppskriftabókin á að heita Hvítkökubók og í henni verða engar súkkulaðikökuuppskriftir!
- Ef ánægja verður með bókina er ætlunin að gefa út viðauka. Í honum verður kennt hvernig hægt er að elda kryddsíld með sjónvarpsköplum.

Heyrst hefur að að bakaranefndin muni leggja til að allir leikskólar landsins, með manni og mús, verði seldir erlendum kröfuhöfum. Ýmislegt bendir nefnilega til þess að innræting illrar hugmyndafræði hefjist strax á unga aldri í leikskólum með leiknum "Hver stal kökunni úr krúsinni í gær?" Í þeim háskalega leik er barninu kennt að ekki skuli axla ábyrgð heldur benda einfaldlega á næsta mann. Með aðkomu erlendra kröfuhafa frá Cayman-eyjum og Tortola er vafalaust hægt að spyrna gegn ósómanum og nýrri þjóðfélagsskipan verður komið á, -- þjóðfélagsskipan þar sem ekkert er persónugert og allir ganga um með lambhúshettur.
Miklar líkur eru til þess að kökuleikurinn verði þá aflagður í leikskólum og horfa menn björtum augum til nýrra leikja handa nýjum leikskólabörnum. Burt með gömlu skaðlegu leikina og inn með nýja frjálsa tíma! Hér eru til dæmis nokkrir leikir sem börn nýrra tíma munu leika:
- Fellum krónuna! -- í staðin fyrir gamla leikinn fallin spýta.
- Yfirverð -- í staðinn fyrir gamla leikinn yfir.
- Magga malar gull -- í staðinn fyrir úllen dúllen doff.
- Lánalínuskautar -- í staðinn fyrir gömlu línuskautana.
- Verðbólgubrenna -- í staðinn fyrir gamla leikinn brennó.
- Mistakaleikurinn -- hver getur búið til stærst mistök úr keðju með 5 hlekkjum.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur16.1.2009
Flokkun:
Efnisorð
kökur krús Hérastubbur mistök lambhúshettur Cayman-eyjar Tortola persónugerving lánalínur króna verðbólga
Tilvísun
Ritstjórn Vísindavefsins. „Hver stal kökunni úr krúsinni í gær?“. Vísindavefurinn 16.1.2009. http://visindavefur.is/?id=9527. (Skoðað 23.5.2013).
Höfundur
Ritstjórn Vísindavefsins




