Spurning

Hvaða amínósýrur eru lífsnauðsynlegar fyrir líkamann og af hverju?

Spyrjandi

Örn Steinar

Svar

Lifandi frumur geta framleitt stórar og flóknar sameindir eins og til dæmis prótein, kjarnasýrur og fjölsykrur. Þessar stóru sameindir eru meðal annars notaðar til uppbyggingar, sem hormón, viðtakar í frumuhimnum og svo framvegis. Þessar sameindir eru gerðar úr smærri grunneiningum. Grunneiningarnar fyrir prótein eru amínósýrur, grunneiningarnar fyrir fjölsykrur eru einsykrur og grunneiningarnar fyrir kjarnasýrur eru kirni. Próteinin í okkur eru af mismunandi gerð og byggist mismunurinn á því hvaða amínósýrur mynda próteinin og hvernig amínósýrurnar eru tengdar saman.

Um það bil 300 mismunandi gerðir af amínósýrum eru til í náttúrunni en einungis 20 þeirra eru notaðar til að smíða próteinin. Þær heita: glycine, alanine, valine, leucine, isoleucine, serine, threonine, tyrosine, cysteine, methionine, aspartic-sýra, asparagine, glutamic-sýra, glutamine, arginine, lysine, histidine, phenylalanine, tryptophan, proline. Þessar 20 amínósýrur eru notaðar til að smíða prótein í öllum lífverum, manninum, dýrum, plöntum og örverum. Eins og er orðið vel þekkt í dag er það erfðaefnið (DNA - RNA) sem stjórnar því hvernig þessum 20 amínósýrum er raðað saman við smíði próteinanna.

Frumur mannslíkamans geta smíðað meirihlutann af amínósýrunum en það eru nokkrar sem við getum ekki smíðað, að minnsta kosti ekki í nægjanlegu magni. Þessar amínósýrur kallast lífsnauðsynlegar amínósýrur. Þær eru: histidine, isoleucine, leucine, lysine, methionine, phenylalanine, threonine, tryptophan og valine. Eina leið okkar að fá þessar amínósýrur er með fæðunni, það er að segja að við verðum að borða mat sem inniheldur prótein þar sem þessar amínósýrur eru til staðar. Við brjótum niður próteinin og tökum amínósýrurnar upp gegnum slímhúð meltingarfæra yfir í blóðið. Ef þessar amínósýrur vantar getum við ekki smíðað öll okkar prótein og það getur leitt til alvarlegra sjúkdóma.

Mismunandi er eftir fæðutegundum hversu góðir próteingjafar þær eru, það er hvort próteinin í fæðunni innihaldi lífsnauðsynlegu amínósýrurnar. Prótein úr eggjum og mjólk eru gæðaprótein hvað þetta varðar. Prótein úr kjöti teljast einnig góð en ef menn lifa eingöngu á fæðu úr jurtaríkinu þarf að gæta þess vel að hafa mikinn fjölbreytileika í fæðunni til að fá í sig allar lífsnauðsynlegar amínósýrur. (Sjá svar Jóhönnu Eyrúnar Torfadóttur við spurningunni Fá grænmetisætur öll þau næringarefni sem líkaminn þarfnast?)

Við þurfum að fá þessar amínósýrur stöðugt úr fæðunni því að líkaminn getur ekki safnað í sig birgðum af amínósýrum. Annað hvort eru þær notaðar strax eða brotna niður sem orkugjafar.

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur29.9.2000

Efnisorð

amínósýrur

Tilvísun

Stefán B. Sigurðsson. „Hvaða amínósýrur eru lífsnauðsynlegar fyrir líkamann og af hverju?“. Vísindavefurinn 29.9.2000. http://visindavefur.is/?id=952. (Skoðað 18.6.2013).

Höfundur

Stefán B. Sigurðssonprófessor í lífeðlisfræði við HÍ



Leit


Vísindadagatalið

John Lubbock
(1834-1913)
( Fyrri Næsti )

Enskur fornleifafræðingur og bankamaður. Skrifaði eitt af mikilvægari ritum um fornleifafræði á 19. öld, undir áhrifum þróunarkenningar Darwins.

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans