Hvernig svitna kettir?
Spyrjandi
Sveinn Heiðar Kristjánsson
Svar
Kettir svitna mjög lítið þar sem þeir hafa einungis örfáa svitakirtla en kettir og hundar eiga það sameiginlegt að svitna aðeins neðan á loppunum. Kettir eru hins vegar þannig úr garði gerðir að þeir eiga alls ekki erfitt með að eyða heilum degi úti í sólinni þótt þeir séu einungis með örfáa svitakirtla.![]() |
Í stað þess að svitna á sólríkum og heitum dögum þá anda kettir hraðar, taka andköf og reka jafnvel út úr sér tunguna líkt og hundar. Við öll andköfin og hraðan andardráttinn gufar munnvatnið upp þegar þeir kyngja. Þannig geta kettir kælt sig niður.
Ef köttum verður of heitt og þeir ná ekki að kæla sig leita þeir í skjól og hvíla sig þar á meðan þeir kólna niður. Það er því mikilvægt að kettir hafi aðgang að góðu skjóli, auk þess að hafa vatn að drekka.
Heimildir: Mynd:
- en.wikipedia.org - Cat. Sótt 14.6.2012.
Þetta svar er eftir nemendur í Háskóla unga fólksins, námskeiðum á vegum HÍ fyrir 12-16 ára ungmenni í júnímánuði 2012.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur15.6.2012
Efnisorð
kettir sviti svitna svitakirtlar anda andköf tunga munnvatn gufa upp kæla sig hiti skjól vatn
Tilvísun
Birta Gyða Gunnarsdóttir, Silja Jónsdóttir og Steinunn Ósk Leifsdóttir. „Hvernig svitna kettir?“. Vísindavefurinn 15.6.2012. http://visindavefur.is/?id=7948. (Skoðað 22.5.2013).
Höfundar
Birta Gyða Gunnarsdóttirnemandi í Háskóla unga fólksinsSilja Jónsdóttirnemandi í Háskóla unga fólksinsSteinunn Ósk Leifsdóttirnemandi í Háskóla unga fólksins






