Spurning
Þróast vestræn vísindi í átt að yogaheimspeki? Ef svo er hve langt er í það að þessi vísindi nái saman?
Spyrjandi
Ævar Már Óskarsson, f. 1983
Svar
Aðferð vestrænna vísinda og hugmynd þeirra um viðfangsefni sín eru allar aðrar en yogaheimspekinnar indversku.Ýmsir hafa orðið til að benda á samsvörun í niðurstöðum vísindalegra athugana og þess kerfis sem vísindin hafa smíðað um heiminn annars vegar og helgisagna og heimshugmynda austrænna siða hins vegar. Merkustu helgi- og siðahefðir heimsins eru enda nógu ríkar til að rúma hliðstæður við nánast hvað sem er.
Menn sem eru fróðir um bæði indversku yogahefðina og vestræn vísindi eru ekki á hverju strái. En nærtækt dæmi þegar til umfjöllunar eru samliggjandi leiðir fornra og nýrra hugmynda er Demókrítos hinn gríski sem lagði fram frumeindakenningu um 500 árum fyrir Krist -- sagði allt efni vera gert úr ódeilum eða atómum og allur gangur heimsins og þær breytingar sem hlutir í honum undirgangast eigi sér stað í hreyfingu þessara einda. Hér mætti segja að efnafræði nútímans hafi nálgast hina grísku hugmynd. En tilgáta Demókrítosar var aðeins ein af mörgum sem komu fram í hinu frjósama Grikklandi fornaldar. Og engum undrum sætir í raun að einhver þeirra fari nærri því kerfi sem ein vísindagrein, efnafræðin, hefur sett um sitt viðfangsefni.
Þetta er ekki sagt til að gera lítið úr innsýn yogaheimspekinga eða grískra heimspekinga í tilveruna, heldur fyrst og fremst til að benda á hve hált okkur getur orðið á því að tengja saman hugmyndir úr gerólíkum stöðum í tíma og rúmi. Oft er hætt við að slíkur samanburður risti grunnt.
Raunvísindin hafa leitað lengra síðan kenningin um frumeindir hlaut aftur hljómgrunn á nýöld. Atómin eru úrelt undirstaða í þeirri raunvísindagrein sem lengst skyggnist í athugun á gangi heimsins, eðlisfræðinni. Öreindir og kvarkar hafa tekið við af þeim og auk þess lýsir skammtafræðin heiminum með líkindahugtakið að vopni. Í tilraun til samþættingar þeirrar lýsingar á hinu smáa og lýsingar afstæðiskenningarinnar á hegðun þess sem fer hratt vinna menn nú meðal annars að svokallaðri strengjakenningu þar sem sett er fram sú mynd að undirstaða alls sem er séu ósýnilegir strengir með misjafna sveiflutíðni.
Hvort ríkjandi kenningar og lýsingar vísindamanna á heiminum muni í framtíðinni eiga sér augljósar hliðstæður innan yogafræða eða ekki er því óráðið enn.
Sjá svar Jóns Ólafssonar við spurningunni: Hvað eru vísindi?
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur15.8.2000
Flokkun:
Tilvísun
Haukur Már Helgason. „Þróast vestræn vísindi í átt að yogaheimspeki? Ef svo er hve langt er í það að þessi vísindi nái saman?“. Vísindavefurinn 15.8.2000. http://visindavefur.is/?id=794. (Skoðað 19.6.2013).
Höfundur
Haukur Már Helgasonheimspekingur og fyrrverandi starfsmaður Vísindavefsins




