Spurning
Hvað er líparít?
Spyrjandi
Óskar Sigurðsson
Svar
Líparít, sem einnig nefnist ljósgrýti (samanber blágrýti og grágrýti), en sumir nefna „rhýólít" eftir enska heitinu, er súrt gosberg. „Gosberg" þýðir að það hefur myndast í eldgosi og þess vegna storknað tiltölulega hratt, en „súrt" merkir að hlutfall kísils (SiO2) í berginu er hærra en 65% af þunga, og oft um 70%. Til samanburðar eru minna en 52% kísils í basísku bergi (basalt, blágrýti) og 52-65% í ísúru bergi (andesít, íslandít).
Það fer eftir aðstæðum kólnunar hvaða bergtegund myndast við storknun bráðar með samsetningu líparíts. Storkni bráðin hægt í iðrum jarðar myndast grófkristallað granít, í grunnum innskotum myndast fínkristallað granófýr, líparít myndast í eldgosum, en við snögga kælingu í vatni vinnst ekki tími fyrir kristalla að myndast og bergkvikan storknar sem gler, hrafntinna.
Mynd: MINERALS IN YOUR WORLD
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur9.8.2000
Flokkun:
Efnisorð
líparít ljósgrýti gosberg súrt berg ísúrt berg basískt berg basalt granít granófýr hrafntinna
Tilvísun
Sigurður Steinþórsson. „Hvað er líparít?“. Vísindavefurinn 9.8.2000. http://visindavefur.is/?id=756. (Skoðað 18.6.2013).
Höfundur
Sigurður Steinþórssonprófessor í jarðfræði við HÍ





