Spurning
Hver skrifaði Njálu og hvenær var hún skrifuð?
Spyrjandi
Heiða Björk Halldórdóttir
Svar
Höfundur Njálu er óþekktur. Hvergi í handritum sögunnar né í neinum fornum heimildum er þess getið hver hafi skrifað hana. Sagan sjálf gefur heldur engar upplýsingar sem geti leyft ótvíræða ályktun um þetta.Á síðari tímum hafa margar tilraunir verið gerðar til að leiða líkur að því hver höfundurinn sé. Í formála að útgáfu sögunnar í Íslenzkum fornritum, 12. bindi (1954), fjallar Einar Ólafur Sveinsson um leitina að höfundi á bls. c-cii. Hann getur um tilgátur fyrri manna, svo sem eins og þá að Sæmundur fróði hafi skrifað söguna, sem upp kom á 17. öld, og tilgátur manna á þessari öld þar sem nefndir hafa verið Jón Loftsson, Snorri Sturluson, Einar Gilsson, Þorvarður Þórarinsson (tilgáta Barða Guðmundssonar), og hafnar hann þeim öllum. Sjálfur hafði hann eitt sinn nefnt Þorstein Skeggjason af ætt Skógverja, en viðurkennir að það sé á veikum grunni reist, og þar að auki vitum við mjög lítið um manninn. Síðan hafa menn nefnt bæði Sturlu Þórðarson (Matthías Johannessen) og Árna biskup Þorláksson (Hermann Pálsson), en engin samstaða hefur orðið um neina tilgátu.
Meira er hægt að segja um aldur sögunnar. Fimm elstu handritin eru frá því um 1300, og þótt þær aldursákvarðanir séu ekki nákvæmar fer varla hjá því að eitthvert þeirra sé svo gamalt eða lítið eitt eldra. Talið er nokkuð víst að í sögunni gæti áhrifa frá lagamáli Járnsíðu sem fékk gildi 1271. Einhvern tíma hefur það tekið höfundinn að kynnast henni. Margs konar rök benda til að sagan sé frá síðari hluta þrettándu aldar. Sterkar líkur eru því til að sagan sé samin á árabilinu 1275-1295 (1275-1285 segir Einar Ólafur Sveinsson).
Sjá einnig svar sama höfundar við spurningunni Hvers vegna eru Íslendingasögur höfundarlausar? og við spurningu um aldur og uppruna Íslendingasagna.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur4.8.2000
Flokkun:
Efnisorð
Tilvísun
Vésteinn Ólason. „Hver skrifaði Njálu og hvenær var hún skrifuð?“. Vísindavefurinn 4.8.2000. http://visindavefur.is/?id=731. (Skoðað 21.5.2013).
Höfundur
Vésteinn Ólasonprófessor emeritus





