Spurning

Hver er munurinn á náttúrulyfjum og náttúruvörum?

Spyrjandi

Ritstjórn

Svar

Jurtir hafa verið notaðar frá örófi alda í bæði í hefðbundinni og óhefðbundinni lyfja- og læknisfræði. Innihaldsefni plantna eru breytileg í mismunandi plöntulíffærum (til dæmis rót, fræ, blöð og börkur) og einnig eftir vaxtarstað, uppskerutíma, meðhöndlun eftir uppskeru og vinnsluaðferð.

Á síðustu áratugum hefur fjöldi náttúruvara sem útbúnar eru á einfaldan hátt úr jurtum, dýrum, örverum, steinefnum eða söltum verið settar á markað. Náttúruvörur eru oftast extrökt, það er flóknar blöndur margra innihaldsefna og eru þær flokkaðar sem fæðubótarefni. Það eru ekki gerðar kröfur um víðtækt gæðaeftirlit né að niðurstöður rannsókna liggi fyrir um verkanir, auka- og milliverkanir.

Náttúrulyf eru einnig oftast extrökt en um þau eru gerðar kröfur um margþætt gæðaeftirlit og að innihaldsefni séu óbreytt á milli framleiðslulota, það er að sama magn af innihaldsefnum sé í hverjum skammti. Auk þess þurfa niðurstöður vísindarannsókna að hafa sýnt fram á að náttúrulyfið nýtist mönnum í baráttunni við sjúkdóma eða að það hafi fyrirbyggjandi áhrif eða að um hefð eða langa reynslu af notkuninni sé að ræða.



Eitt þeirra náttúrlyfja sem leyft er hérlendis er unnið úr rót garðabrúðu (Valeriana officinalis) og er það notað við óróa og svefnerfiðleikum.

Með náttúrulyfjum þarf að fylgja ítarleg samantekt á eiginleikum lyfsins og fylgiseðill sem hefur að geyma allar helstu upplýsingar fyrir neytandann um náttúrulyfið líkt og gildir um lyf. Það er heimilt að merkja og auglýsa ábendingar á náttúrulyfjum en ekki náttúruvörum.

Með því að smella hér má skoða reglugerð um markaðsleyfi náttúrulyfja sem tók gildi þann 1. janúar 1998. Listi yfir þau náttúrulyf sem hafa markaðsleyfi hér á landi er að finna á vef Lyfjastofnunar. Loks má benda á að á vef Lyfju er pistill eftir Ólöfu Þórhallsdóttur lyfjafræðing um aukaverkanir og milliverkanir náttúrulyfja, náttúruvara og fæðubótarefna.

Á Vísindavefnum eru nokkur svör sem fjalla um jurtir sem notaðar hafa verið í lækningaskyni í gegnum tíðina, til dæmis: Mynd: Valerian (herb) á Wikipedia. Sótt 15. 02. 2008.

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur15.2.2008

Tilvísun

Sesselja Ómarsdóttir og Margrét Bessadóttir. „Hver er munurinn á náttúrulyfjum og náttúruvörum?“. Vísindavefurinn 15.2.2008. http://visindavefur.is/?id=7070. (Skoðað 18.6.2013).

Höfundar

Sesselja Ómarsdóttirlektor í lyfja- og efnafræði náttúruefna við HÍMargrét Bessadóttirdoktorsnemi í lyfjafræði



Leit


Vísindadagatalið

John Lubbock
(1834-1913)
( Fyrri Næsti )

Enskur fornleifafræðingur og bankamaður. Skrifaði eitt af mikilvægari ritum um fornleifafræði á 19. öld, undir áhrifum þróunarkenningar Darwins.

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans

Háskóli unga fólksins 2013