Spurning

Hvað tekur líkamann langan tíma að melta fæðu?

Spyrjandi

Inga Arnardóttir

Svar

Það fer alfarið eftir því hvernig fæðan er samsett hversu langan tíma tekur að melta hana. Þumalputtareglan er þó sú að sólarhring eftir að við höfum borðað máltíð höfum við melt hana og losað okkur við þann hluta hennar sem við getum ekki melt.



Meltingarvegurinn nær allt frá munni til endaþarms og er nokkurra metra langur. Fæðan berst frá munni og allt niður í ristil og hefst mislengi við á hverjum stað. Þannig er hún fremur stutt í munninum eftir því hversu vel við tyggjum hana áður en kyngt er, oft aðeins nokkrar sekúndur.

Eftir kyngingu er fæðan 5-6 sekúndur að flytjast niður vélindað frá koki til maga. Þar er hún mun lengur eða 2-4 klukkutíma áður en hún berst áfram í skeifugörnina sem er efsti hluti smáþarma. Í smáþörmum fara fram lokaskref efnameltingar og upptaka meltra næringarefna. Oftast er fæðan þar í 5-6 klukkutíma.

Að lokum berst fæðan í ristilinn þar sem upptaka vatns og steinefna fer fram og saur er myndaður úr ómeltanlegu efni. Það líða yfirleitt á bilinu 12 til 24 klukkutímar áður en við losum hægðir sem verða til í kjölfarið um endaþarminn. Tíminn sem fæðan er í ristlinum getur þó verið enn lengri.

Heildartíminn sem fæðan er að fara í gegnum meltingarveginn er þannig 20-35 klukkustundir og er þá átt við vel samsetta máltíð sem inniheldur bæði meltanlegar sykrur og ómeltanlegar (trefjaefni), fitu, prótín og fleira.

Frekari fróðleikur á Vísindavefnum: Heimildir og mynd:

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur25.4.2007

Tilvísun

Þuríður Þorbjarnardóttir. „Hvað tekur líkamann langan tíma að melta fæðu?“. Vísindavefurinn 25.4.2007. http://visindavefur.is/?id=6608. (Skoðað 21.5.2013).

Höfundur

Þuríður Þorbjarnardóttirlíffræðingur



Leit


Vísindadagatalið

Robert Owen
(1771-1858)
( Fyrri Næsti )

Velskur stjórnspekingur, einn af frumkvöðlum sósíalisma og samvinnuhreyfingar. Hélt því fram að persónuleiki mótaðist af umhverfi, sbr. mannauðshugtakið nú á dögum.

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans