Spurning
Hvaða tilgangi þjónar serótónín í heilanum? Hverjar eru afleiðingarnar ef starfsemi þess er raskað?
Spyrjandi
Sara Pálsdóttir
Runólfur Ó. Kristjánsson
Svar
Serótónín (e. serotonin), einnig nefnt 5-HT, er eitt af mörgum taugaboðefnum sem heilinn notar til boðskipta. Það tilheyrir svokölluðum mónóamínum (e. monoamines) ásamt adrenalíni (e. epinephrine), noradrenalíni (e. norepinephrine) og dópamíni (e. dopamine). Mónóamínin hafa öll svipaða efnafræðilega uppbyggingu.
Uppbygging serótóníns.
Seyti serótóníns hefur áhrif á skapferli og almenna virkni (e. arousal). Það stýrir einnig áti og svefni og gegnir hlutverki í skynjun sársauka. Of lítið magn serótóníns tengist hvatvísi og árásargirni, bæði hjá fólki og ýmsum öðrum dýrategundum. Skortur á serótóníni virðist einnig tengjast höfuðverkjarköstum.
Ýmislegt bendir til að serótónín gegni hlutverki í vandamálum eins og þunglyndi, kvíða og áráttu- og þráhyggjuröskun. Til dæmis er talið að þunglyndir hafi færri og/eða ónæmari serótónínviðtaka, sem aftur veldur minni virkni serótóníns. Til að meðhöndla þunglyndi eru því oft gefin lyf sem auka áhrif serótóníns í heilanum. Lyf sem auka serótónínvirkni geta líka minnkað matarlyst og eru því stundum gefin fólki sem stríðir við offitu.
Þetta er laggott svar. Laggóðum svörum er yfirleitt ekki ætlað að gera efninu endanleg skil á sama hátt og venjuleg svör Vísindavefsins. Í staðinn eiga laggóðu svörin að þjóna lesendum sem óska eftir stuttum og hnitmiðuðum svörum.
Frekara lesefni á Vísindavefnum
- Hvað er adrenalín og hvernig er það myndað í líkamanum? eftir Þuríði Þorbjarnardóttur.
- Hvað eru taugaboð og hvernig verka þau? eftir Heiðu Maríu Sigurðardóttur.
- Hvað gerir dópamín? eftir Þuríði Þorbjarnardóttur.
- Hvað og hvar eru chemoreceptorar? eftir Þuríði Þorbjarnardóttur.
- Hvernig starfar boðskiptakerfi líkamans? eftir Þuríði Þorbjarnardóttur.
- Hvað er serótónínheilkenni og hverjar eru orsakir þess? eftir Þuríði Þorbjarnardóttur.
- Carlson, N.R. 2001. Physiology of Behavior. Allyn and Bacon, Boston.
- Nolen-Hoeksema, S. (2004). Abnormal psychology (3. útgáfa). New York: McGraw-Hill.
- Image:Serotonin-skeletal.png. Wikipedia: The Free Encyclopedia.
- Image:Serotonin-3D-vdW.png. Wikipedia: The Free Encyclopedia.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur21.2.2007
Flokkun:
Tilvísun
HMS. „Hvaða tilgangi þjónar serótónín í heilanum? Hverjar eru afleiðingarnar ef starfsemi þess er raskað?“. Vísindavefurinn 21.2.2007. http://visindavefur.is/?id=6507. (Skoðað 18.6.2013).
Höfundur
HMSB.A. í sálfræði og doktorsnemi í taugavísindum við Brown University





