Spurning
Ég las í grein frá 1919 að flugvöllur í Reykjavík þyrfti að vera 4-500 stikur á lengd, hvað er það samkvæmt metrakerfinu?
Spyrjandi
Erling Andreassen
Svar
Stika er gömul lengdarmálseining og lengd hennar er nokkuð misjöfn. Ein stika getur jafngilt:- einni alin
- einni og hálfri danskri alin
- 55,6 cm
- einum metra
Um tíma var einnig reynt að nota orðið stika um lengdarmálseininguna metra og vel má vera að í greininni sem spyrjandi vísar á sé það raunin. Þá er stærð flugvallarins einfaldlega 400 til 500 metrar.
Sé miðað við að stikan hafi verið 55,6 cm, þá er flugvöllurinn í blaðagreininni á bilinu 222,4 m til 278 m á hvern veg. Ef við miðum við að greinarhöfundur hafi átt við stiku sem samsvaraði einni og hálfri danskri alin, þá er gert ráð fyrir flugvelli sem væri 400-500 metrar á hvern veg. Flugbrautir Reykjavíkurflugvallar í dag eru á bilinu 1-1,5 km.
Fyrsta flugtak frá Íslandi var 3. september árið 1919. Þá fór á loft úr Vatnsmýrinni tvíþekja af gerðinni AVRO 504K. Eins og sést á myndbandinu hér fyrir neðan þurftu slíkar vélar ekki langa flugbraut til flugtaks.
Heimildir:
- Sagan. (Skoðað 22.03.2012).
- Skólablaðið, 6. árgangur 1912, 4. tölublað - Timarit.is. (Skoðað 11.04.2012).
Ég var að lesa á Netinu í Morgunblaðinu frá 25. maí 1919 grein um staðsetningu flugvallar í Reykjavík. Þar er sagt að flugvöllurinn þurfi að vera 4-500 stikur á hvern veg. Hvað er það mikið á okkar mælikvarða í dag? Þessi grein er afar fróðleg fyrir alla aðila.Höfundur þakkar Þorvaldi Sigurðssyni fyrir að benda á að um tíma hafi orðið stika verið notað um metrann.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur23.3.2012
Flokkun:
Tilvísun
JGÞ. „Ég las í grein frá 1919 að flugvöllur í Reykjavík þyrfti að vera 4-500 stikur á lengd, hvað er það samkvæmt metrakerfinu?“. Vísindavefurinn 23.3.2012. http://visindavefur.is/?id=62152. (Skoðað 18.6.2013).
Höfundur
JGÞ




