Spurning

Hvernig fá menn sér kríu og hvað kemur krían því við?

Spyrjandi

Rafn Haraldsson

Svar

Orðasambandið að fá sér kríu er stytting úr að fá sér kríublund ‛leggja sig mjög stutta stund’. Orðið kríublundur þekkist að minnsta kosti frá því um miðja 20. öld. Allir sem þekkja kríuna hafa tekið eftir að hún tyllir sér oft niður örstutta stund eða vokar yfir æti og steypir sér síðan niður, veiðir og er farin. Til þessa háttalags fuglsins er orðasambandið sótt.


Orðasambandið „að fá sér kríu“ er sótt í háttalag fuglsins.

Mynd:
Upprunalega hljómaði spurningin svona:
Hvaðan kemur orðasambandið „að fá sér kríu“? Hvers vegna er orðið kría notað?

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur4.4.2012

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvernig fá menn sér kríu og hvað kemur krían því við?“. Vísindavefurinn 4.4.2012. http://visindavefur.is/?id=62136. (Skoðað 23.5.2013).

Höfundur

Guðrún Kvaranprófessor



Leit


Vísindadagatalið

Stefán Stefánsson
(1863-1921)
( Fyrri Næsti )

Grasafræðingur, skólamaður og alþingismaður, rannsakaði jurtir um allt land í mörg sumur og gaf út fyrstu Flóru Íslands. Lét sér annt um skólamál og vísindi.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans