Spurning

Vex plantan Linnaea borealis á Íslandi og hefur hún eitthvað íslenskt heiti?

Spyrjandi

Guðlaugur Ingi Ástvaldsson, f. 1995

Svar

Plantan Linnaea borealis er lágvaxin skógarbotnsplanta og nefnist á íslensku lotklukka. Hún vex í Norður-Ameríku og Evrasíu. Í Evrópu vex lotklukkan í Skandinavíu, á Bretlandseyjum og á meginlandi Evrópu, norðan Alpafjalla. Einnig vex hún víða í fjalllendu svæði Austur-Evrópu og í Ölpunum.

Lotklukkan vex ekki villt á Íslandi og ekki heldur í Færeyjum eða á Grænlandi.

Plantan Linnaea borealis nefnist á íslensku lotklukka.

Lotklukkan er nefnd eftir Svíanum Carl von Linné (1707-1778) en hann hefur oft verið kallaður faðir flokkunarfræðinnar. Linné var einnig þekktur sem Carl Linnaeus eða Carolus Linnaeus. Hafði Linné mikið dálæti á plöntunni.

Mynd:

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur29.2.2012

Tilvísun

Jón Már Halldórsson. „Vex plantan Linnaea borealis á Íslandi og hefur hún eitthvað íslenskt heiti?“. Vísindavefurinn 29.2.2012. http://visindavefur.is/?id=61933. (Skoðað 19.6.2013).

Höfundur

Jón Már Halldórssonlíffræðingur

Frekara lesefni á Vísindavefnum:



Leit


Vísindadagatalið

György Lukács
(1885-1971)
( Fyrri Næsti )

Ungverskur heimspekingur, bókmenntafræðingur og marxisti, einn af höfundum vestræns marxisma. Fjallaði m.a. um hlutgervingu, stéttarvitund og um raunsæi í bókmenntum.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans