Spurning

Framleiðir ÁTVR munntóbak?

Spyrjandi

Ritstjórn

Svar

Í íslenskum lögum nr. 6/2002 stendur: „Bannað er að flytja inn, framleiða og selja fínkornótt neftóbak og allt munntóbak, að undanskildu skrotóbaki.“

Munntóbak er vanalega grófkornóttara en neftóbak og er því komið fyrir í munnvikum, annaðhvort sem muldu tóbaki eða í grisjum (pokum). Skrotóbak er skilgreint sem tóbak í bitum eða ræmum og er það sett í munn og tuggið. Þó að neftóbak sé framleitt með það fyrir augum að það eigi að setja í nefið þá er fólki í sjálfvald sett hvort það tekur neftóbak í nefið eða í vörina en seinni kosturinn hefur einmitt færst mikið í aukana seinustu ár. Það má því kannski segja að framleiðsla á íslenska neftóbakinu séu hártoganir á íslensku lögunum.


Tóbakshorn Jóns Sigurðssonar
Í reglugerð nr. 325/2007 kemur fram eftirfarandi um kornastærð á neftóbaki: „Með fínkornóttu neftóbaki er átt við neftóbak þar sem að minnsta kosti helmingur korna er minni en 0,5 mm að þvermáli.“

Þegar þetta er ritað hefur ÁTVR því ekki leyfi til að framleiða munntóbak en má framleiða íslenska neftóbakið svokallaða þar sem það er grófkornótt neftóbak.

Ástæðan á bak við þessa lagasetningu var að reyna að sporna við aukinni notkun á munntóbaki eins og hægt er að lesa í svari við spurningunni: Á hvaða forsendum var munntóbak bannað hér um árið? Ástæðan fyrir banni á fínkornóttu neftóbaki er líklega einnig stutt heilsufarslegum hugmyndum. Fínkornótt neftóbak hefur nefnilega meira yfirborðsflatarmál en grófkornótt; efnin í fínkornótta neftóbakinu losna því auðveldar úr tóbakinu. Með neyslu á grófkornóttu neftóbaki eru nikótín og önnur skaðleg efni í tóbakinu því tekin hægar upp í líkama neytandans og hugsanlega verður heildarmagn þessara efna einnig minna.

Heimildir: Myndir:

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur20.1.2012

Tilvísun

Emelía Eiríksdóttir. „Framleiðir ÁTVR munntóbak?“. Vísindavefurinn 20.1.2012. http://visindavefur.is/?id=61736. (Skoðað 24.5.2013).

Höfundur

Emelía Eiríksdóttirefnafræðingur og starfsmaður Vísindavefsins



Leit


Vísindadagatalið

Janusz Korczak
(1878-1942)
( Fyrri Næsti )

Pólskur barnalæknir, kennslufræðingur og barnabókahöfundur. Rak munaðarleysingjahæli fyrir gyðingabörn í Varsjá og sýndi þeim virðingu, en lét svo lífið ásamt þeim.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans