Spurning
Hvar finn ég aðgengilegar upplýsingar og heimildir um hæstu fjöll í heimi og fleira í þeim dúr?
Spyrjandi
Þorsteinn Magnússon, f. 2000
Svar
Vísindavefurinn fær stundum spurningar um ýmis fyrirbæri á jörðinni og stærðarröð þeirra, til dæmis hver eru hæstu fjöll í heimi, í Evrópu eða í hverri heimsálfu, hver eru stærstu stöðuvötn heims, stærstu jöklar, lengstu ár, stærstu eða fjölmennustu lönd og svona mætti lengi telja. Sumum þessara spurninga hefur þegar verið svarað á Vísindavefnum, eins og sést til dæmis undir Frekara lesefni hér til hægri.Forvitnir lesendur þurfa hins vegar ekki að bíða eftir að svör við svona spurningum birtist á Vísindavefnum heldur er yfirleitt tiltölulega auðvelt að nálgast þau á öðrum vefsíðum. Til dæmis er Wikipedia (www.wikipedia.org) með lista yfir ótal margt. Í spurningunni voru nefnd hæstu fjöll og það er einmitt til síða á Wikipediu sem heitir List of highest mountains sem telur upp 100 hæstu fjöll jarðarinnar.
![]() |
Svipaðar upplýsingar má finna á fleiri síðum, til dæmis má benda á síðuna WorldAtlas.com en þar má finna upplýsingar um ýmislegt sem er stærst eða mest í heimi svo sem stærstu og dýpstu höf, stærstu og minnstu heimsálfur og lönd, bæði að flatarmáli og eftir mannfjölda og svo mætti lengi telja. Ýmislegt má líka finna á landafræðihluta vefsins Infoplease.com.
Hér hafa aðeins verið nefnd þrjú dæmi en það er örugglega mjög víða hægt að finna svona upplýsingar, til að mynda með því að nota leitarvélar eins og Google eða Yahoo. Þá er bara að slá inn leitarorð yfir það sem maður hefur áhuga á að finna (í þessu tilfelli til dæmis “highest mountains in the world”) og sjá hvaða niðurstöðum það skilar.
Loks má geta þess að þeir sem hafa áhuga á lengstu ám, helstu stöðuvötnum, jöklum eða hæð fjalla á Íslandi geta fundið slíkar upplýsingar á vef Landmælinga Íslands (www.lmi.is), undir fróðleikur – Ísland í tölum.
Mynd:
- Tallest Mountains in the World – Top 10 List á Famous Wonders. Sótt 9. 1. 2012.
Hver eru 100 hæstu fjöll í heimi?
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur11.1.2012
Flokkun:
Efnisorð
Tilvísun
EDS. „Hvar finn ég aðgengilegar upplýsingar og heimildir um hæstu fjöll í heimi og fleira í þeim dúr? “. Vísindavefurinn 11.1.2012. http://visindavefur.is/?id=61547. (Skoðað 18.6.2013).
Höfundur
EDS
Prenta
Senda
Frekara lesefni á Vísindavefnum:
- Hver eru 10 hæstu fjöllin í heiminum?
- Hver eru stærstu stöðuvötn í heimi og hver eru þau stærstu í Evrópu?
- Hver eru tíu dýpstu vötn í heimi?
- Hvert er stærsta eldfjall í heimi?
- Hvaða land í Norður-Evrópu er bæði stærst og fjölmennast? En í Evrópu allri?
- Hver eru lengstu fljót í heimi?
- Hvar get ég lesið um einstök lönd heims?
- Hvar er hægt að finna upplýsingar um hversu margir búa í tilteknu landi?





