Spurning
Hvernig verða loftsteinar til?
Spyrjandi
Patrekur Örn Friðriksson
Svar
Á milli reikistjarna eru fullt af hnullungum svo sem geimsteinar, geimgrýti eða reikisteinar. Þeir eru venjulega úr bergi, bergi og járni eða eingöngu úr járni. Flestir eru þeir leifar frá þeim tíma þegar sólkerfið myndaðist fyrir um 4.600 milljónum ára. Þessir hnullungar rekast stundum á lofthjúpinn og hitna þá svo mikið að þeir lýsast upp og kallast þá hrapsteinar eða stjörnuhrap. Sumir hnullunganna komast hins vegar inn í gufuhvolfið og kallast þá loftsteinar. Milljónir loftsteina lenda á jörðinni á hverjum degi en flestir brenna þeir upp í gufuhvolfinu í um 100 km hæð yfir jörðu. Þeir sjást yfirleitt aðeins í nokkrar sekúndur og ferðast á hraðanum 5-30 km/s.
Lofsteinn yfir Búdapest í Ungverjalandi
Sumir loftsteinar ná þó alla leið til jarðar en eru í flestum tilfellum meinlausir. Það kemur þó fyrir að stórir loftsteinar, smástirni eða halastjörnur lendi á jörðinni. Oftast nær bráðna slíkir loftsteinar við það að skella á jörðinni og skilja aðeins eftir sig stóra gíga. Einn stærsti loftsteinn sem hefur lent á jörðinni lenti fyrir um 65 milljónum ára þar sem nú heitir Mexíkóflói. Talið er að sá loftsteinn hafi haft áhrif á skyndilegan útdauða risaeðla á jörðinni.
Frekara lesefni á Vísindavefnum
- Er vitað hversu margir loftsteinar hafa fallið á jörðina? eftir Sævar Helga Bragason
- Hvers vegna lýsa loftsteinar þegar þeir ferðast í gegnum gufuhvolfið og eru þeir heitir ef þeir rekast á jörðina eftir Sævar Helga Bragason
- Hver er munurinn á gígum eftir sprengigos og gígum eftir árekstur við stóran loftstein? eftir Sigurð Steinþórsson
- Af hverju kemur stjörnuhrap? eftir Þorstein Vilhjálmsson
- Er vitað hvers vegna risaeðlur dóu út? eftir Sigurð Steinþórsson
Þetta svar er eftir nemanda í Háskóla unga fólksins, námskeiðum á vegum HÍ fyrir 12-16 ára ungmenni í júnímánuði 2006.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur24.8.2006
Flokkun:
Tilvísun
Aron Eydal Sigurðarson. „Hvernig verða loftsteinar til?“. Vísindavefurinn 24.8.2006. http://visindavefur.is/?id=6148. (Skoðað 24.5.2013).
Höfundur
Aron Eydal Sigurðarsonnemandi í Háskóla unga fólksins





