Spurning
Geta dýr gert konur óléttar?
Spyrjandi
Agnar Alexander, f. 1998
Svar
![]() |
Annað þekkt dæmi er kynblöndun nokkurra tegunda stórkatta (Panthera). Kunnasta dæmið er blendingur ljóna (Panthera leo) og tígrisdýrs (Panthera tigris). Þessi tröllauknu blendingsfyrirbrigði nefnast á ensku ligers eða tigons.
En er hægt að blanda saman erfðaefni manns og annars dýrs? Fyrir utan að slíkar tilraunir væru vægt til orða tekið afar vafasamar af siðferðilegum ástæðum, eru ýmsir erfðafræðilegir vankantar við slíka blöndun erfðaefnis. Hægt er að nefna tvo líffræðilega þröskulda sem koma í veg fyrir frjóvgun kynfruma manns og annars dýrs. Sá fyrri byggir á viðtakaprótínum í frumuhimnu eggfrumunnar og skyldum viðtakaprótínum í frumuhimnu sæðisfrumunnar. Þessi prótín þurfa að passa saman, líkt og lykill gengur að skrá. Hjá einstaklingum af sömu tegund eða meðal náskyldra tegunda ætti lykillinn að ganga að skránni en meðal óskyldra tegunda er svo ekki. Síðari þröskuldurinn er fjöldi og gerð litninga beggja kynfruma. Til þess að frjóvgun geti orðið þurfa litningar að sameinast og verða þá að erfðaefni nýs einstaklings. Ef þeir eru mismargir þá gengur dæmið ekki upp.
En er erfðaefni og litningafjöldi konu og annars spendýrs nógu líkt til að frjóvgun geti orðið og einhvers konar hálfmenni orðið til? Til þess að svara þeirri spurningum er vert að skoða þá tegund sem er skyldust okkur, nefnilega simpansa (Pan troglodytes).
Erfðaefni simpansa og manna er mjög líkt en meginmunurinn felst í því að menn hafa einu litningapari færra en simpansar og reyndar aðrir mannapar. Menn hafa 23 pör af litningum en simpansar eru með 24 litningapör. Einhvern tímann í þróunarsögu mannsins varð samruni eða tenging á telómerasa tveggja litninga og myndaðist þá litningur sem við nefnum litning 2. Nokkrir aðrir þættir í erfðaefni manna og simpansa eru einnig ólíkir. Þessi mismunur veldur því að frjóvgun getur ekki orðið á milli manna og simpansa. Það er einnig hægt að útiloka frjóvgun milli manna og annarra mannapa, svo sem bonobo-apa (Pan paniscus) og górillu (Gorilla gorilla).
Myndir:
- File:2006-12-09 Chipanzees D Bruyere.JPG - Wikipedia, the free encyclopedia. (Sótt 3.04.2012).
- File:Frecklesmule.jpg - Wikipedia, the free encyclopedia. (Sótt 3.04.2012).
Margir hafa sent inn sambærilegar spurningar, til dæmis:
- Er líffræðilegur möguleiki á að mann-apar og menn geti eignast saman afkvæmi?
- Hvers vegna er æxlun milli manna og apa ekki möguleg?
- Getur manneskja (Homo sapiens) eignast afkvæmi með apa?
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur4.4.2012
Flokkun:
Efnisorð
dýr kona ólétt getnaður erfðaefni kynblöndun múldýr kynfrumur prótín tegund litningar simpansar mannapar
Tilvísun
Jón Már Halldórsson. „Geta dýr gert konur óléttar?“. Vísindavefurinn 4.4.2012. http://visindavefur.is/?id=61325. (Skoðað 20.6.2013).
Höfundur
Jón Már Halldórssonlíffræðingur
Prenta
Senda
Frekara lesefni á Vísindavefnum:
- Hefur tveimur dýrategundum verið blandað saman? Ef svo er, hvaða tegundum?
- Geta tígrisdýr og blettatígur eignast afkvæmi og hvað kallast það þá? Geta mismunandi kattardýr eignast afkvæmi?
- Geta úlfar og hundar eignast afkvæmi og skiptir máli hvaða hundategundir eru þar að verki?
- Getur verið að neanderdalsmaðurinn hafi ekki dáið út heldur blandast nútímamanninum?
- Hver er erfðafræðilegi munurinn á manni og mannapa? Er órangútan ekki 97% maður?
- Hvaða merkingu hefur hugtakið tegund í líffræði?






