Spurning
Hvort lenti höggið á höfðinu eða herðunum þegar menn voru klofnir í herðar niður í Íslendingasögunum?
Spyrjandi
Finndís Diljá Jónsdóttir, f. 1997
Svar
Í Njáls sögu segir frá því í 120. kafla að Ásgrímur Elliða-Grímsson og Njáls synir gengu til búðar Þorkels háks í leit að liðveislu á þingi. Hvöss orðaskipti urðu milli Skarphéðins Njálssonar og Þorkels. Þorkell þreif sax sitt og Skarphéðinn stóð með reidda öxina og sagði: „Ger þú nú annaðhvort Þorkell hákur að slíðra saxið og sest niður eða eg keyri öxina í höfuð þér og klýf þig í herðar niður.“![]() |
Af þessum orðum að dæma er högginu beint að höfðinu og höggið það þungt að öxin klýfur það niður að öxlum.
Heimild:
- Íslendinga sögur. Fyrra bindi. Bls. 268. Reykjavík: Svart á hvítu. 1985.
- Handritin heima - fræðsluvefur. Sótt 27.12.2011.
Upprunalega spurningin hljóðaði svo:
Hvað er átt við þegar sagt er í Íslendingasögum að einhver hafi verið klofinn í herðar niður? Kemur höggið þá fyrst í höfuðið og niður að herðum eða kemur það fyrst á herðarnar?
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur28.12.2011
Efnisorð
Íslendingasögur kljúfa herðar niður Njáls saga höfuð öx axlir
Tilvísun
Guðrún Kvaran. „Hvort lenti höggið á höfðinu eða herðunum þegar menn voru klofnir í herðar niður í Íslendingasögunum?“. Vísindavefurinn 28.12.2011. http://visindavefur.is/?id=61295. (Skoðað 19.6.2013).
Höfundur
Guðrún Kvaranprófessor






