Spurning
Hver var Edward Carr og hvert var hans framlag til sagnfræðinnar?
Spyrjandi
Ritstjórn
Svar
Edward Hallet Carr var breskur alþjóðastjórnmála- og sagnfræðingur, einkum þekktur fyrir tvö verk sín, ærið misstór. Annað var saga Sovétríkjanna á árunum 1917–29 í 14 bindum, hitt útgáfa á fyrirlestraröð um aðferðir og eðli sagnfræði, What is History? sem fyllti aðeins 159 blaðsíður í smáu broti Pelican-bóka sem Penguin gaf út.![]() |
Á árunum milli heimsstyrjalda, meðan Carr var í utanríkisþjónustunni, skrifaði hann margt um alþjóðastjórnmál, og er þekktasta bók hans um þau efni The Twenty Years Crisis 1919–1939 (1939), um stjórnmál Evrópu á millistríðsárunum og aðdraganda þeirrar heimsstyrjaldar sem var að skella á þegar bókin kom út. Carr var meðal þeirra sem töldu að sigurvegarar fyrri heimsstyrjaldarinnar hefðu sett Þjóðverjum allt of þrönga kosti með friðarsamningunum eftir stríðið. Hann vildi að Þjóðverjum yrði gefið færi á að verða ríkjandi veldi í Austur-Evrópu, allt austur að Sovétríkjum og studdi viðleitni breskra íhaldsmanna til að halda friði við Hitler. Þó var Carr enginn sérstakur Þjóðverjavinur og því síður nasisti. Aftur á móti fékk hann smám saman mikið álit á Sovétríkjunum. Á árum síðari heimsstyrjaldar hélst honum uppi að tjá sig merkilega frjálst um það efni í leiðurum The Times, og stafaði það auðvitað að hluta til af því að þá voru Sovétmenn vopnabræður Breta.
![]() |
What is History? snýst að verulegu leyti um að leggja fræðilegan grunn undir þessa trú á að mannkynið sé á framfaraleið og þeirri framfarasókn sé best lýst með sagnfræði sem fáist við samfélagsþróun fremur en verk einstakra gerenda sögunnar. Samkvæmt undirtitli er bókin fyrirlestraröð sem höfundur hélt í Cambridge árið 1961 og eru kenndir við breska sagnfræðinginn George Macaulay Trevelyan. En bókin skiptist í sex kafla, 22–31 blaðsíðna langa í Penguin-útgáfunni. Ef einn fyrirlestur hefur myndað einn kafla hefur höfundur aukið þá mikið áður en þeir voru prentaðir.
![]() |
Í öðrum kafla bókarinnar fjallar Carr um einstaklinginn og samfélagið og færir rök að því að það sé frumstætt einkenni í söguritun að einskorða sig við einstaklinga. Þegar samfélög þroskist taki söguritun þeirra líka út þroska og fari að skoða félagsleg öfl sem breyti samfélögum. Í þriðja kafla talar hann fyrir því að líta á sagnfræði sem vísindi (e. science) og talar í því samhengi gegn því að fella siðferðislega dóma í söguritum. Fjórði kafli fjallar um orsakarhugtakið og sýnir glöggt og skemmtilega hvernig sagnfræðingar hljóta að velja úr því sem þurfti að fara á undan atburði þegar þeir rekja orsakir hans. Í fimmta kafla er fjallað um framfarahugtakið. Þegar Carr hélt fyrirlestra sína var breska heimsveldið að leysast upp og sú tilfinning var almenn meðal Breta, segir hann, að menningu manna væri að hnigna. Carr gerir lítið úr því og staðhæfir að mannkynið sé á framfarabraut en framfarahugtakið sé bara óhlutstætt og fái ólíkt innihald á ólíkum tímum. Í síðasta kafla gerir hann tilraun til að rekja framfarasókn mannlegrar hugsunar síðustu aldirnar.
Texti What is History? er sérkennilega skemmtilegur, víða fyndinn og hlaðinn vel völdum tilvitnunum til hinna fjölbreytilegustu höfunda. Sagan af skjalasafni Stresemanns er aðeins rakin hér sem dæmi um aðferð höfundar. Frá fræðilegu sjónarmiði var Carr líka nýstárlegur og ögrandi á sinni tíð, einkum í Bretlandi þar sem ströng raunhyggja og staðreyndadýrkun ríkti í sagnfræði. Eins var á Íslandi á sjöunda áratug 20. aldar. Þegar litið er yfir æviverk Carrs nú er augljóst að talsverður hluti af bókinni er vörn fyrir afstöðu sem hann hafði tekið í sögu Sovétríkjanna og atlaga í erjum hans við samtímamenn sína. Engu að síður er bókin sígilt verk og umtalsverður áfangi á leið sögulegrar hugsunar út úr þeirri raunhyggju sem hún hafði lengi verið föst í.
Íslenskum lesanda sem lifði kaldastríðsárin hlýtur að koma á óvart hvað Carr leyfðist að koma víða fram með skoðanir sínar og á virðulegum vettvöngum. En þar hefur hann notið þess að vera hluti af sterkri bylgju róttækra sósíalista meðal breskra menntamanna. Þeir voru svo öflugir að ekki reyndist unnt að stöðva þá.
Myndir:
- Mynd af Carr: E. H. Carr á Wikipedia. Sótt 18. 11. 2011.
- The Bolshevik Revolution: Bibliopolis. Sótt 18. 11. 2011.
- What is History: Penguin Books. Sótt 18. 11 2011.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur21.11.2011
Efnisorð
Edward Carr sagnfræðingur Sovétríkin Stalín samfélagsþróun félagshyggja skjöl einstaklingur samfélag framfarir
Tilvísun
Gunnar Karlsson. „Hver var Edward Carr og hvert var hans framlag til sagnfræðinnar?“. Vísindavefurinn 21.11.2011. http://visindavefur.is/?id=61265. (Skoðað 19.5.2013).
Höfundur
Gunnar Karlssonprófessor emeritus í sagnfræði við HÍ







