Hver var Nicolas de Condorcet og hvert var framlag hans til fræðanna?
Spyrjandi
Ritstjórn
Svar
Nicolas de Condorcet, eða Marie Jean Antoine Nicolas Caritat, markgreifinn af Condorcet (1743-1794) var franskur stærðfræðingur, hagfræðingur og heimspekingur sem auk þess fékkst við söguspeki og vann brautryðjandi verk í sögu félagsvísinda. Condorcet telst vera einn af síðustu svonefndu philosophes frönsku upplýsingarinnar.![]() |
Tímabilið frá september 1793 til júlí 1794 hefur einfaldlega verið kallað le Terreur, þegar ógnarstjórn Comité de salut public undir forystu Maximiliens Robespierres (1758-1794) gekk á milli bols og höfuðs þeirra sem töldust ógna öryggi þegnanna og framgangi byltingarinnar. Aðstæður Condorcets gáfu því ekki tilefni til bjartsýni. En einmitt á þessum tíma, þegar Condorcet gat hvenær sem er verið handsamaður og leiddur undir fallöxina, skrifaði hann Esquisse d’un tableau historique des progrès de l’esprit humain eða Drög að sögu framfara mannsandans. Þrátt fyrir aðstæður sínar var Condorcet sannfærður um að harðstjórn, fáfræði, fordómar og félagsleg kúgun myndu brátt heyra sögunni til. Þær byltingar sem stæðu yfir á sviðum stjórnskipunar, þekkingar, vísinda og tækni myndu brátt binda enda á þær stofnanir og þau viðhorf sem héldu aftur af mannlegri velferð. Þau skilyrði væru fyrir hendi að maðurinn gæti haldið áfram að bæta sjálfan sig og samfélag sitt um ókomna tíð. Condorcet var gripinn á flótta í úthverfi Parísar og fáum dögum síðar, þann 28. mars 1794, fannst hann látinn í fangaklefa sínum. Hann var 51 árs.
Condorcet fæddist í Ribemont í norðurhluta Frakklands þann 17. september árið 1743 og hóf skólagöngu sína í Jesúítaskólanum í Reims en hélt svo til frekara náms í París þar sem hann lagði stund á siðfræði, frumspeki, rökfræði og stærðfræði við Collège de Navarre. Þar komst hann meðal annars í kynni við verk Newtons (1642-1727) og heimspeki Lockes (1632-1704) og Condillacs (1715-1780) sem höfðu mótandi áhrif á mannskilning hans og heimsmynd. Árið 1765 vakti ritgerð Condorcet um örsmæðareikning (Essai sur le calcul intégral) athygli vísindasamfélagsins og skömmu síðar varð hann félagi í Konunglegu vísindaakademíunni (Académie royale des Sciences). Condorcet var einn fremsti stærðfræðingur heims á sínum tíma og skrifaði til að mynda á þriðja tug greina um stærðfræði í viðbótarbindi Alfræðibókar Diderots (1713-1784) og d‘Alemberts (1717-1783) sem komu út á árunum 1776-1777, en d‘Alembert hafði tekið Condorcet undir sinn verndarvæng meðan hann var enn í námi.
![]() |
Condorcet taldi að aðferðir raunvísindanna væru nauðsynleg forsenda þess að hægt væri að takast á við félagsleg vandamál af skynsemi og skapa grundvöll fyrir nýtt þjóðskipulag. Lykilþáttur í hugmyndum hans var að sanngildi fullyrðinga, eða ályktana, sem eru dregnar af reynsluathugunum má tjá stærðfræðilega sem líkur. Condorcet hafnaði því að alger vissa sé nauðsynlegt skilyrði allrar þekkingar. Það sem skiptir máli er réttmæti þeirrar aðferðar sem leiðir í ljós líkurnar á því að tiltekinn ályktun sé sönn. Við getum kannski ekki verið viss um ótvírætt sanngildi einhvers, en við getum verið viss um hvort það sé líklega eða ólíklega satt. Þessa þekkingarfræðilegu afstöðu má túlka sem viðbragð við efahyggju í anda Descartes (1596-1650) og á sér meðal annars hljómgrunn í heimspeki Davids Humes (1711-1776). Með því að leggja áherslu á að reynslustaðreyndir gætu verið traustur grundvöllur þekkingar á félagslegum veruleika mannsins steig Condorcet skref í átt til pósitívisma nítjándu aldar og hafði veruleg áhrif á verk fræðimanna á borð við Saint-Simon (1760-1825) og Auguste Comte (1798-1857) sem lögðu grunninn að félagsfræði nútímans.
![]() |
Ári eftir að Condorcet fannst látinn í fangaklefa sínum kom Esquisse d’un tableau historique des progrès de l’esprit humain fyrir sjónir almennings. Þar kristölluðust framtíðarhugsjónir og hin söguspekilega afstaða upplýsingarinnar. Vissulega þekktust höfundar á átjándu öld sem voru ekki bjartsýnir á framtíðarhorfur mannkyns, en eitt af grundvallarstefjum upplýsingarinnar fólst í trúnni á möguleika mannsins til að hafa mótandi áhrif á líf sitt og samfélag. Þó svo að fræðilegt gildi verka Condorcets sé ekki síst fólgið í aðferðafræði hans við að takast á við það sem nú mætti kalla félagsfræðilegar spurningar, þá verður nafn hans þó ætíð fyrst og fremst tengt hugmyndafræði framfarahyggjunnar. Framfarahyggja Condorcets sló tóninn fyrir sumar af þeim hugmyndafræðilegu stefnum og áherslum sem höfðu hvað mest áhrif á hugmynda- og heimspekisögu Vesturlanda á nítjándu öld og hafði til að bera mikilvæg sérkenni sem verður að halda til haga. Hún fól til að mynda ekki í sér nauðhyggju eða gagnrýnislausa afstöðu til samfélagslegra markmiða. Þó svo að tilvist mannsins sé vissulega háð náttúrulegum lögmálum og ferlum, eru framfarir mannkynsins fyrst og fremst háðar mannlegum vilja, beitingu skynseminnar og félagslegu eðli mannsins. Framfarir í þessum skilningi eru ekki óhjákvæmilegar eða fólgnar í einföldum töfralausnum. Condorcet reyndi á eigin skinni að þrá og vilji mannsins eftir betra og siðmenntaðra samfélagi getur leitt til upplausnar og ranglætis.
Myndir:
- Mynd af de Condorcet : Marquis de Condorcet á Wikipedia. Málverk eftir Jean-Baptiste Greuze (1725-1805).
- Mynd af Turgot: Marquis de Condorcet á Wikipedia.
- Mynd af Sophie de Grouchy: Sophie de Condorcet á Wikipedia.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur11.11.2011
Flokkun:
Vísindavefur > Dagatal vísindamanna
Hugvísindi > Sagnfræði: mannkynssaga
Efnisorð
Nicolas de Condorcet Frakkland franska byltingin örsmæðareikningur félagsvísindi kosningakerfi Condorcet-aðferð reynsluathuganir dauðarefsing framfarahyggja upplýsingin skynsemi
Tilvísun
Jakob Guðmundur Rúnarsson. „Hver var Nicolas de Condorcet og hvert var framlag hans til fræðanna?“. Vísindavefurinn 11.11.2011. http://visindavefur.is/?id=61163. (Skoðað 21.5.2013).
Höfundur
Jakob Guðmundur Rúnarssondoktorsnemi í heimspeki við HÍ








