Spurning

Hvað eru mörg fótboltalandslið í heiminum?

Spyrjandi

N.N.

Svar

Þegar þetta er skrifað eru 208 landslið karla á skrá hjá Alþjóðaknattspyrnusambandinu (FIFA). Þar af eru 46 í undirsambandi FIFA í Asíu, 53 í Afríku, 10 í Suður-Ameríku, 11 í Eyjaálfu, 53 í Evrópu, og í Norður-Ameríku, Mið-Ameríku, og Karíbahafinu eru samtals 40 landslið á skrá. Fimm þeirra síðastnefndu tilheyra þó ekki FIFA: Franska Gvæjana, Gvadelúpeyjar, Martiník og tvö lið eyjunnar Sankti Marteins.


Stuðningsmenn brasilíska landsliðsins.

Til eru fleiri landslið, en þar sem þau eru ekki meðlimir í FIFA er þeim óheimilt að taka þátt í heimsmeistaramótinu í knattspyrnu. Nokkur landslið sem áður voru meðlimir í FIFA hafa nú lagt upp laupana sökum þess að ríkin sem þau spiluðu fyrir eru ekki lengur til. Þetta eru lið Tékkóslóvakíu, Austur-Þýskalands, Saar, Suður-Víetnam, Suður-Jemen, Sovétríkjanna og Júgóslavíu.

Samkvæmt heimasíðu FIFA eru 129 kvennalandslið í knattspyrnu á styrkleikalista sambandsins, en eflaust eru þó fleiri starfandi.

Frekara lesefni á Vísindavefnum Heimildir og mynd
Þetta svar er eftir nemanda í Háskóla unga fólksins, námskeiðum á vegum HÍ fyrir 12-16 ára ungmenni í júnímánuði 2006.

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur6.7.2006

Tilvísun

Þorsteinn Gunnar Jónsson. „Hvað eru mörg fótboltalandslið í heiminum?“. Vísindavefurinn 6.7.2006. http://visindavefur.is/?id=6050. (Skoðað 22.5.2013).

Höfundur

Þorsteinn Gunnar Jónssonnemandi í Háskóla unga fólksins



Leit


Vísindadagatalið

Sofia Kovalevskaya
(1850-1891)
( Fyrri Næsti )

Rússneskur stærðfræðingur, ein fyrsta konan í Evrópu sem lauk doktorsprófi og varð fullgildur prófessor. Rannsakaði m.a. hlutafleiðujöfnur, sporbaugsheildi og hringa Satúrnusar.

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans