Hver er skilgreiningin á dvergi og eru til íslensk heiti yfir dwarf, midget og pygmy?
Spyrjandi
Gestur Gunnarsson, Hólmfríður María Þórarinsdóttir, Ásthildur Jóhannsdóttir, Sigurður Arinbjarnason, Sigurlaug Friðþjófsdóttir
Svar
Dvergur er oftast skilgreindur sem einstaklingur sem er lægri en 147 cm á fullorðinsaldri. Ensku orðin "dwarf", "midget" og "pygmy" eru öll þýdd með íslenska orðinu dvergur. Til eru orðin skógardvergur og dvergsvertingi yfir þá sem nefnast pygmy á ensku og einnig er orðið íslenskað sem pygmýi.![]() |
Í um 70% tilfella stafar dvergvöxtur af brjóskkyrkingi (e. achondroplasia) sem ríkjandi stökkbreyting í geni á líkamslitningi veldur. Í flestum tilfellum þeirra eða 85% er stökkbreytingin stakstæð og oft tengd háum aldri föður (eldri en 35 ára) en hún getur einnig erfst frá foreldri með kvillann. Talið er að barn sem erfir stökkbreytta genið frá báðum foreldrum deyi á fósturskeiði eða fljótlega eftir fæðingu. Ef báðir foreldrar eru dvergvaxnir af þessum orsökum eru 50% líkur á að barn þeirra verði það einnig, 25% líkur á að barnið deyi skömmu eftir fæðingu og 25% líkur á að það nái eðlilegri hæð.
Stökkbreytingin leiðir til þess að myndun brjósks verður óeðlileg og kemur hún fram í afmyndaðri beinagrind með stóru höfði miðað við aðra líkamshluta, stuttum útlimum og breiðum höndum með stuttum kjúkum, svo dæmi um einkenni séu nefnd. Meðalhæð fullorðins fólks með þennan dvergvöxt er 131 cm.
![]() |
Hugtakið "pygmy" er notað yfir heila kynþætti manna sem eru dvergvaxnir. Mannfræðingar skilgreina hópa manna þar sem fullorðnir karlmenn ná ekki 150 cm hæð sem dverga (pygmýa). Slíkir kynþættir finnast víða í Mið-Afríku og Ástralíu. Pygmýar eru til dæmis 5-10% af íbúum Lýðveldisins Kongó. Talið er víst að náttúruval hafi leitt til þessarar þróunar en pygmýar lifa langflestir í regnskógum og mynda veiðimanna- og safnarasamfélög. Ekki er vitað með vissu hvaða gen koma við sögu í þessari þróun en þau virðast tengjast efnaskiptum skjaldkirtilshormónsins þýroxíns sem er nauðsynlegt fyrir vöxt. Pygmýar virðast hafa aðlagast joðsnauðu fæði en joð er nauðsynlegt fyrir myndun þýroxíns. Talið er líklegast að dvergvöxtur þeirra sé aðlögun að almennum joðskorti sem einkennir líf í regnskógum.
Heimildir og myndir:
- Wikipedia:
- Mynd af dvergum: Dwarfism á Castanet. Sótt 30. 12. 2011.
- Mynd af pygmýum: Group takes "venture capital" approach to conservation á Mongabay.com. Sótt 30. 12.2011.
Upprunalega hljóðaði spurningin svona:
Hver er skilgreiningin á dvergi? Snýst það aðeins um hæð (hvar liggja mörkin) eða þarf meira til? Enn fremur, hver er munurinn á dwarf og midget? Og hvað er pygmy? Eru til mismunandi íslensk orð yfir allt þetta?Hér er einnig svarað spurningunum:
- Hvað þarf fólk að vera lítið til að teljast vera dvergur?
- Hvað getið þið sagt mér um dvergvöxt? Er hann víkjandi eða ríkjandi?
- Ef tveir dvergar eignast saman barn, verður barnið þá dvergur ?
- Hvað getið þið sagt okkur um dverga? Til dæmis orsakir, algengustu gerðir og þess háttar.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur10.1.2012
Flokkun:
Efnisorð
dvergur dvergar dvergvöxtur skilgreining dwarf midget pygmy pygmýar brjóskkyrkingur stökkbreyting brjósk bein skjaldkirtill skjaldkirtilshormón þýoxín joð
Tilvísun
Þuríður Þorbjarnardóttir. „Hver er skilgreiningin á dvergi og eru til íslensk heiti yfir dwarf, midget og pygmy?“. Vísindavefurinn 10.1.2012. http://visindavefur.is/?id=60460. (Skoðað 21.5.2013).
Höfundur
Þuríður Þorbjarnardóttirlíffræðingur







