Spurning

Hvernig er glútenlaus bjór bruggaður?

Spyrjandi

Ritstjórn

Svar

Glúten er prótín sem er að finna í mörgum korntegundum, aðallega hveiti en líka í byggi, spelti, höfrum og rúgi. Glútenlaus bjór er gerður úr möltuðum (spíruðum) korntegundum sem ekki innihalda glúten og þá aðallega dúrru (e. sorghum) og hirsi (e. millet). Að öðru leyti er bruggferlið eins eða sambærilegt og þegar hefðbundinn bjór er gerður.

Glúten er prótín sem finnst aðallega í hveiti en líka í byggi, spelti, höfrum og rúgi.

Enn sem komið er er enginn íslenskur glútenlaus bjór framleiddur en í hillum ÁTVR er að finna þrjár glútenfríar tegundir: Neumarkter Lammsbrau, Mongozo Premium Pilsener og Green's Premium Pils.

Frekara lesefni á Vísindavefnum:
Mynd:

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur23.8.2011

Tilvísun

Guðmundur Mar Magnússon. „Hvernig er glútenlaus bjór bruggaður?“. Vísindavefurinn 23.8.2011. http://visindavefur.is/?id=60228. (Skoðað 23.5.2013).

Höfundur

Guðmundur Mar Magnússonbruggmeistari Ölgerðar Egils Skallagrímssonar



Leit


Vísindadagatalið

Stefán Stefánsson
(1863-1921)
( Fyrri Næsti )

Grasafræðingur, skólamaður og alþingismaður, rannsakaði jurtir um allt land í mörg sumur og gaf út fyrstu Flóru Íslands. Lét sér annt um skólamál og vísindi.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans