Hver var György Lukács og fyrir hvađ er hann ţekktur?
Spyrjandi
Ritstjórn
Svar
Ungverski heimspekingurinn og bókmenntafrćđingurinn György eđa Georg Lukács (1885-1971) var einn áhrifamesti og umdeildasti frćđimađur marxískrar hefđar á tuttugustu öld. Ţekktastur er Lukács fyrir endurskođun sína á undirstöđukenningum marxískrar ţjóđfélagsgreiningar, kenningar sínar um skáldsöguna og skrif sín um raunsćishefđina í bókmenntum.Fyrstu greinar Lukács um bókmenntir birtust á ungversku, en fyrsta lykilrit hans, Die Seele und die Formen (Sál og form), birtist á ţýsku 1911. Međ útgáfu verksins rötuđu skrif Lukács inn í umhverfi sem ţau voru ađ hluta til sprottin úr, enda má hér greina skýr ummerki ţeirrar hefđar lífheimspeki sem Lukács kynntist í Berlín á árunum 1909-1910, ţegar hann var međal annars nemandi heimspekingsins og félagsfrćđingsins Georgs Simmel. Verkiđ er skýr birtingarmynd ţeirrar vitundar um kreppu borgaralegrar menningar sem var áberandi á međal evrópskra menntamanna á upphafsárum tuttugustu aldar. Titillinn skírskotar til viđvarandi átaka á milli innra lífs og formsköpunar, ţar sem mađurinn leitast árangurslaust viđ ađ finna sínu innra lífi tjáningarform. Verkiđ kallast á viđ ţekkta greiningu Simmels á „harmleik menningarinnar“, ţar sem lífiđ leitar stöđugt í ný form, sem ţađ síđan brýtur niđur til ađ leita annarra.
Áriđ 1916 kom út ritiđ Theorie des Romans (Kenning um skáldsöguna). Ţar fjallar Lukács um ţróunarferil skáldsögunnar, sem hann rekur allt frá söguljóđum Hómers, um verk Dantes og Cervantes, til skáldsagna Goethes, Flauberts og Dostojevskijs. Verkinu lýsti Lukács síđar sem afurđ „rómantísks andkapítalisma“ er vísađi veginn til marxískrar fagurfrćđi og söguskođunar í síđari verkum sínum. Ađ mati Lukács er skáldsagan knúin áfram af einskonar heimţrá, söguhetjurnar eru leitendur sem reyna ađ fóta sig í veröld sem er orđin ţeim framandi. Líf mannsins í heiminum er orđiđ ađ ráđgátu og jafnvel áţján, líkt og endurspeglast međ skýrum hćtti í lífi Dons Kíkóta, sem Lukács lítur á sem einskonar erkitýpu hinnar nýju söguhetju, er reynir árangurslaust ađ sćtta sína innri köllun og umheiminn. Kyrrstćđ heimsmynd söguljóđsins hefur vikiđ fyrir ólgandi heimsmynd nútímans og ţrotlausri leit söguhetjunnar ađ samastađ í sundruđum heimi. Hin marxísku hvörf á ferlinum verđa ţegar Lukács gengur í Ungverska kommúnistaflokkinn áriđ 1918, á tímum mikils pólitísks umróts. Eftir lok fyrri heimsstyrjaldarinnar og hrun Habsborgarveldisins áriđ 1918 var Ungverska alţýđulýđveldiđ stofnađ en í marsmánuđi 1919 stofnuđu sósíaldemókratar og kommúnistar Ráđsstjórnarlýđveldi í landinu og fékk Lukács stöđu Alţýđufulltrúa menningar- og menntamála. Ráđsstjórnarlýđveldiđ var brotiđ á bak aftur eftir nokkra mánuđi og Lukács flúđi til Vínarborgar. Í framhaldinu helgađi hann krafta sína hinni kommúnísku baráttu, auk ţess sem hann birti nokkrar pólitískar greinar og vann ađ útgáfu síns áhrifamesta rits.
Međ útgáfu Geschichte und Klassenbewußtsein (Saga og stéttarvitund) áriđ 1923 varđ Lukács einn ţeirra lykilhöfunda sem lögđu grunn ađ frćđahefđ sem oft er kennd viđ vestrćnan eđa gagnrýninn marxisma. Áhrif verksins má međal annars rekja til skrifa ţeirra höfunda sem kenndir eru viđ Frankfurt-skólann eđa gagnrýna kenningu, ţar á međal Theodors W. Adorno, Herberts Marcuse, Jürgens Habermas og Peters Bürger. Hugtakiđ vestrćnn marxismi vísar til ađgreiningar ţessarar frćđahefđar frá rétttrúnađarmarxisma, sem byggđi á kreddufastri trú á ţá söguskođun og ţjóđfélagsgreiningu sem var ríkjandi í Sovétríkjunum. Í ritinu leggur Lukács megináherslu á ađ hverfa aftur til uppruna hinnar marxísku ađferđar og sćkir í ţví skyni einkum til Hegels.
Sérstađa verksins felst í samţćttingu nýkantisma, lífheimspeki og marxískra frćđa, sem er fléttađ saman í greiningu á borgaralegri ţjóđfélagsgerđ. Í stađ ţess ađ einblína á samhengi stéttaátaka beinir Lukács sjónum ađ menningarlegu ástandi hins borgaralega nútímasamfélags. Gagnrýni hans snýr ađ ţví ferli rökvćđingar sem ţýski félagsfrćđingurinn Max Weber hafđi fjallađ um í skrifum sínum. Lukács lýsir ţví hvernig rökvćđingin leiđir til verkaskiptingar, sérhćfingar, stéttskiptingar og firringar, ţar sem einstaklingnum er fengiđ skýrt afmarkađ hlutverk í framleiđslukerfinu og skortir alla heildarmynd af ţjóđfélaginu. Ţessu ferli, sem leiđir til ţess ađ einstaklingurinn er metinn alfariđ út frá hlutverki sínu innan framleiđsluferlisins og hćgt er ađ skipta honum út fyrir annan, lýsti Lukács sem hlutgervingu. Niđurstađan var ađ hans mati ţjóđfélagsgerđ sem er í eđli sínu alrćđissinnuđ og teygir sig inn á öll sviđ ţjóđfélags og menningar. Gildi verksins felst ekki síst í ţví hvernig Lukács losar um stéttarhugtakiđ og lítur á ástand firringarinnar sem einskonar lífsskilyrđi mannsins í borgaralegu markađsţjóđfélagi. Mađurinn lifir líkt og í búri, fanginn í hugmyndafrćđi sem útilokar skilning hans á eigin stöđu. Endurskođun Lukács á hinni marxísku hefđ varđ fljótt fyrir harkalegri gagnrýni og Lukács átti eftir ađ fordćma ţetta ćskuverk sitt nokkrum sinnum á síđari árum. Lukács flúđi Ţýskaland eftir ađ nasistar komust til valda áriđ 1933 og hélt til Moskvu, ţar sem hann sendi í kjölfariđ frá sér nokkrar lykilgreinar um raunsćishefđina í bókmenntum. Ritgerđir hans frá fjórđa áratugnum áttu mikilvćgan ţátt í mótun marxískrar fagurfrćđi, en ţćr liggja ađ mörgu leyti á sérstćđum mörkum, ţar sem Lukács tekur í senn gagnrýna afstöđu til ţeirra strauma framsćkinna nútímabókmennta sem oft eru kenndir viđ módernisma og ţeirra krafna um sósíalískt raunsći sem voru ríkjandi innan Sovétríkjanna. Gagnrýni Lukács á módernismann beindist ađ verkum höfunda eins og Franz Kafka, Samuels Beckett og James Joyce, sem hann taldi vera skilgetiđ afkvćmi borgaralegrar menningar á hnignunarskeiđi, er hefđi gefiđ sig heimsmynd upplausnar og firringar á vald. Gegn ţessum bókmenntum tefldi Lukács hefđ „hins mikla raunsćis“, en helsti fulltrúi hennar í samtímanum var ađ hans mati Thomas Mann. Frá sjónarhorni Lukács lá hefđ hins „mikla raunsćis“ um verk borgaralegra höfunda, sem höfđu megnađ ađ gefa skýra heildarmynd af ţróun ţjóđfélagsins, óháđ ţeim pólitísku skođunum sem lágu verkunum til grundvallar. Lykillinn ađ hlutlćgri speglun ţjóđfélagsins var ađ mati Lukács sjálf ađferđ raunsćisins, sem leiddi til ţess ađ verkin gátu sigrast á stéttarstöđu höfundarins og gefiđ sanna mynd af ţjóđfélaginu – ólíkt verkum hinna módernísku höfunda, sem Lukács taldi ófćr um ađ sjá í gegnum hugmyndafrćđilega hulu borgarastéttarinnar. Eitt ţekktasta verk Lukács um skáldsöguna og tengsl hennar viđ hefđ raunsćisins, Der historische Roman (Sögulega skáldsagan), kom út áriđ 1937.
Harđasta gagnrýni Lukács á módernismann kom fram í svokallađri „expressjónismadeilu“, sem fór fram á síđum tímaritsins Das Wort á árunum 1937-1938. Tekist var á um afstöđuna til expressjónismans, sem hafđi veriđ áberandi í ţýsku bókmennta- og menningarlífi áratugina á undan, en deilendurnir litu ýmist á fagurfrćđi stefnunnar sem mikilvćgt framlag til gagnrýni á borgaralegt nútímaţjóđfélag eđa – líkt og Lukács – sem birtingarmynd andrökhyggju er hefđi leitt inn í nasismann. Á međal höfunda sem brugđust til varnar fyrir expressjónismann voru Ernst Bloch, Herwarth Walden og Bertolt Brecht.

Lukács sneri aftur til Búdapestar 1944 og fékk prófessorsstöđu í fagurfrćđi og menningarsögu viđ Búdapestarháskóla ári síđar. Á nćstu árum sendi hann frá sér fjölda ritgerđa, auk umdeildasta rits síns, Die Zerstörung der Vernunft (Tortíming skynseminnar). Í ţessu riti frá 1954 dregur Lukács upp mynd af órofa hefđ borgaralegrar andrökhyggju, sem hann taldi undanfara nasismans. Lukács rekur ţessa hefđ frá skrifum Alfreds Rosenberg um verk höfunda á borđ viđ Max Weber, Georg Simmel og Wilhelm Dilthey, aftur til heimspeki Nietzsches og Schellings. Andstćđupólarnir eru skýrir: Lukács teflir saman upplýsingunni og hefđ andupplýsingar er hafi grafiđ undan ţeirri skynsemi sem mannsćmandi ţjóđfélag verđi ađ byggja á. Ritiđ er harkalegt í gagnrýni sinni og beinist ađ hluta til gegn fyrri áhrifavöldum Lukács, sem hann lýsir sem málpípum heimsvaldastefnunnar.
Eftir uppreisnina í Ungverjalandi 1956 tók Lukács sćti sem menningarmálaráđherra í stjórn Imres Nagy. Eftir ađ Sovétmenn börđu uppreisnina niđur međ hervaldi nokkrum mánuđum síđar var Lukács sendur í útlegđ til Rúmeníu. Hann sneri aftur til Búdapestar 1957 og viđ tók tímabil vćgđarlausrar sjálfsgagnrýni, ţegar Lukács sá sig knúinn til ađ afturkalla mörg af sínum fyrri skrifum. Á lokaskeiđi höfundarferilsins vann Lukács međal annars ađ viđamiklu riti um fagurfrćđi, sem hann hafđi unniđ ađ međ hléum um áratuga skeiđ, auk ţess sem hann lagđi grunn ađ kenningum um marxíska verufrćđi og siđfrćđi.
Nokkrar heimildir:
- Ástráđur Eysteinsson. „Baráttan um raunsćiđ. Um módernisma, raunsći og hefđ“. Umbrot. Bókmenntir og nútími. Reykjavík: Háskólaútgáfan, 1999, s. 30-55.
- Bahr, Ehrhard. Georg Lukács. Berlín: Colloquium, 1970.
- Dannemann, Rüdiger. Georg Lukács zur Einführung. Hamborg: Junius, 1997.
- Jay, Martin. Marxism and Totality. The Adventures of a Concept from Lukács to Habermas. Berkeley, Los Angeles: University of California Press, 1984.
- Schmitt, Hans-Jürgen (ritstj.). Der Streit mit Georg Lukács. Frankfurt am Main: Suhrkamp, 1978.
- Vésteinn Lúđvíksson. „Georg Lukács og hnignun raunsćisins“. Tímarit Máls og menningar, 3-4/1970, s. 206-268.
- en.wikipedia.org - György Lukács. Sótt 24.6.2011.
- en.wikipedia.org - Max Weber. Sótt 24.6.2011.
- en.wikipedia.org - Budapest. Sótt 24.6.2011.
Um ţessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur24.6.2011
Efnisorđ
György Lukács Georg heimspeki bókmenntafrćđi marxísk ţjóđfélagsgreining skáldsaga raunsći lífheimspeki fagurfrćđi söguskođun kommúnismi vestrćnn marxismi rétttrúnađarmarxismi hlutgerving stéttarvitund módernismi expressjónismi ţjóđfélag
Tilvísun
Benedikt Hjartarson. „Hver var György Lukács og fyrir hvađ er hann ţekktur?“. Vísindavefurinn 24.6.2011. http://visindavefur.is/?id=60100. (Skođađ 21.5.2013).
Höfundur
Benedikt Hjartarsonađjúnkt í almennri bókmenntafrćđi viđ HÍ
Prenta
Senda
Frekara lesefni á Vísindavefnum:
- Hver var fyrsta skáldsagan?
- Hver var Karl Marx og hverjir höfđu mest áhrif á hugmyndir hans um samfélagiđ?
- Hver var Lorenzo Valla og hvert var hans framlag til frćđilegrar textarýni?
- Hver var Edward W. Said og hvert var hans framlag til vísinda og frćđa?
- Hver var Viktor Shklovskíj og hvert var hans framlag til bókmenntafrćđinnar?




