Getur maður orðið sólbrúnn í gegnum gler?
Spyrjandi
Einar Bjarni Sigurpálsson, Ragnhildur Stefanía Eyþórsdóttir, f. 1996, Ragna Þórarinsdóttir, Sara Dögg, f. 1994, o.fl.
Svar
Eins og kemur fram í svari Þuríðar Þorbjarnardóttur við spurningunni Hvers vegna verðum við brún af því að vera mikið í sól? eru það útfjólubláir geislar sólarinnar sem virkja litfrumur í húðinni og valda því að húðin dekkist og verður sólbrún.Útfjólublátt ljós er rafsegulgeislun með öldulengdina 100-400 nm en sýnilegt ljós, það er ljós sem mannsaugað getur numið, hefur öldulengdina 400-700 nm. Sýnilegt ljós dofnar lítið á leið í gegnum venjulega glerrúðu, en útfjólublátt ljós meira, einkum fyrir öldulengdir undir 350 nm.
![]() |
Hversu mikil útfjólublá geislun kemst í gegnum gler fer eftir efnasamsetningu og þykkt glersins. Útfjólublá geislun kemst síður í gegnum venjulegt gler eftir því sem öldulengd hennar er styttri. Því kemst meira af svokölluðum UVA-geislum, sem eru útfjólubláir geislar með öldulengdina 320-400 nm, í gegnum gler en UVB-geislum, sem hafa öldulengdina 280-320 nm. Útfjólubláir geislar með styttri öldulengd en 280 nm kallast UVC-geislar en ósonlagið hindrar að þeir komist að yfirborði jarðar.
UVA-geislar eru notaðir í ljósabekkjum. Þeir brenna húðina síður en UVB-geislar, en báðar gerðir geisla virkja litfrumur húðarinnar og geta valdið húðkrabbameini. Einhverjir útfjólubláir geislar komast í gegnum allflestar rúður og því má sjá einhverjar breytingar á húðlit ef löngum tíma er eytt fyrir innan gler í sólarljósi.
Framrúður í bílum eru ekki gerðar úr venjulegu rúðugleri heldur sérstöku gleri sem samanstendur oftast af tveimur glerlögum með plastlagi á milli. Slíkar rúður hleypa mun minna af geislum í gegn heldur en venjulegt gler og því er enn ólíklegra að húðin litist gegnum þær. Þess er einnig vert að geta að þar sem svo lítið af útfjólubláum geislum komast í gegnum gler dugar sólarljós sem skín gegnum það ekki til þess að örva framleiðslu D-vítamíns í líkamanum líkt og beint sólarljós.
Heimildir:
- Hvers vegna verðum við brún af því að vera mikið í sól? eftir Þuríði Þorbjarnardóttur.
- Hvað eru útfjólubláir geislar? eftir Hildi Guðmundsdóttur.
- Can glass block sun rays that cause skin cancer? á síðu Cancer research UK.
- Sunburn through a window? á síðu Indiana public media.
- Sinclair Manufacturing - Gröf sem sýna hvaða öldulengdir ljóss komast gegnum nokkrar gerðir af gleri.
- Wikimedia Commons. Sótt 20. 6. 2012.
Ansi margir hafa sent Vísindavefnum spurningar um hvort hægt sé að vera sólbrúnn í gegnum gler. Nöfn þeirra eru:
Einar Bjarni Sigurpálsson, Ragnhildur Stefanía Eyþórsdóttir, f. 1996, Ragna Þórarinsdóttir, Sara Dögg, f. 1994, Sigurjón Egilsson, Árni Gestsson, Sunna Sigurðardóttir, Páll Arnar Aðalbjörnsson, Sindri Reyr Smárason, Rósa Jónsdóttir, Kristín Jónsdóttir, Katrin Jóna Guðjónsdóttir, Freyr Sigurðarson, Anna Kristín Ólafsdóttir, f. 1994, Andri Már Kristinsson, Sigurbjörg Halla Sigurjónsdóttir og Karólína Óskarsdóttir.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur2.7.2012
Efnisorð
sólbrúnn gler brúnka sólbað húð gróðurhús rúða sól sólskin útfjólubláir geislar bílrúða geislun öldulengd ljós
Tilvísun
Sólrún Halla Einarsdóttir. „Getur maður orðið sólbrúnn í gegnum gler?“. Vísindavefurinn 2.7.2012. http://visindavefur.is/?id=59994. (Skoðað 19.5.2013).
Höfundur
Sólrún Halla Einarsdóttirháskólanemi og starfsmaður Vísindavefsins
Prenta
Senda
Frekara lesefni á Vísindavefnum:
- Getur maður orðið brúnn þótt það sé skýjað?
- Verður maður brúnn af því að sitja við varðeld?
- Af hverju er gler gegnsætt og hvaða efni eru í gleri?
- Hvernig verður gler til?
- Er hægt að auka melanín í líkamanum?
- Í sjónvarpsfréttum um daginn var rætt um styrk sólarljóssins. Hvaða mælingar eru þetta og hafa þær einhverja einingu?






