Spurning
Hvaða kyn hefur orðið skúr þegar talað er um rigningarskúr?
Spyrjandi
Magnús Axelsson, Loftur Hlöðver Jónsson
Svar
Orðið skúr er eitt þeirra orða sem notað er í tveimur kynjum, annars vegar kvenkyni og hins vegar karlkyni. Beyging orðanna er þessi:| Karlkyn | Eintala | Fleirtala | Kvenkyn | Eintala | Fleirtala |
| Nefnifall | skúr | skúrar | Nefnifall | skúr | skúrir |
| Þolfall | skúr | skúra | Þolfall | skúr | skúrir |
| Þágufall | skúr | skúrum | Þágufall | skúr | skúrum |
| Eignarfall | skúrs | skúra | Eignarfall | skúrar | skúra |
Notkunin var áður fyrr nokkuð staðbundin. Karlkynið var einkum notað á Norðurlandi, það er einhverjir skúrar, en kvenkynið sunnanlands, einhverjar skúrir. Nú eru mörkin ekki jafn glögg og áður og heyra má til dæmis bæði kynin nánast jafnt í Reykjavík. Oft slær kynjunum saman. Til dæmis getur sami maður sagt: „Það gerði mikinn skúr (kk) um miðjan daginn“ og „Það voru skúrir (kvk) allan daginn“.
Upprunalega spurningin hljóðaði svo:
Veðurfræðingur í sjónvarpinu talaði ítrekað um að einhverjir skúrir væru í kortunum. Nú hef ég alltaf haldið að orðið skúr væri kvenkynsorð. Hvernig beygist orðið skúrir í þessari samsetningu?
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur2.9.2011
Efnisorð
skúr rigningarskúr veðurfréttir karlkyn kvenkyn fallbeyging einhverjar skúrir einhverjir skúrar staðbundið
Tilvísun
Guðrún Kvaran. „Hvaða kyn hefur orðið skúr þegar talað er um rigningarskúr?“. Vísindavefurinn 2.9.2011. http://visindavefur.is/?id=59844. (Skoðað 20.6.2013).
Höfundur
Guðrún Kvaranprófessor






