Spurning
Er til annar heimur inni í svartholum?
Spyrjandi
Sæþór Bragi Ágústsson, f. 1995
Svar
Eins og fjallað hefur verið um áður á Vísindavefnum getum við aldrei fullvissað okkur um það hvort til sé annar heimur eða ekki. Um það má meðal annars lesa í svari við spurningunni: Gæti hugsanlega verið til annar alheimur?Spyrjandi spyr sérstaklega um svarthol og er þá væntanlega að vísa til svonefndra ormaganga. Með því að fara inn í svarthol væri fræðilega séð hægt að fara bæði á annan stað í alheiminum og hugsanlega í annan alheim. Tengingin þarna á milli nefnist ormagöng

Fræðin um svarthol segja hins vegar að tengingin þarna á milli vari aðeins í örskamma stund, þannig að ekki einu sinni ljósið næði að komast í gegn. Brautin yfir í hugsanlegan annan alheim byggir enn fremur á sérstökum skilyrðum sem vísindamenn álíta að hafi aldrei verið fyrir hendi.
Heimildir og frekara lesefni á Vísindavefnum:
- Hverfur allt sem fer inn í svarthol eða kemur eitthvað út úr þeim aftur? eftir Kristján Rúnar Kristjánsson
- Hvað er svarthol? eftir Tryggva Þorgeirsson og Þorstein Vilhjálmsson
- Hvernig myndast svarthol í geimnum? eftir Tryggva Þorgeirsson og Þorstein Vilhjálmsson
- Hvað eru ormagöng? eftir Tryggva Þorgeirsson
- Wikipedia.org. Sótt 30.9.2008.
Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur11.4.2011
Efnisorð
Tilvísun
JGÞ. „Er til annar heimur inni í svartholum?“. Vísindavefurinn 11.4.2011. http://visindavefur.is/?id=59379. (Skoðað 24.5.2013).
Höfundur
JGÞ




