Spurning
Hvar er Adolf Hitler grafinn?
Spyrjandi
Leó Hallgrímsson, f. 1994
Svar
Adolf Hitler, leiðtogi þýska nasistaflokksins og kanslari Þýskalands, féll fyrir eigin hendi í Berlín þann 30. apríl 1945 eins og lesa má í svari við spurningunni Hvenær dó Hitler? Ástkona hans til margra ára, Eva Braun (sem varð reyndar Eva Hitler aðeins nokkrum klukkustundum áður þegar þau gengu í hjónaband) fylgdi manni sínum í dauðann. Talið er að Eva hafi tekið inn blásýru en Hitler skotið sig.Lengi vel var deilt um hvað raunverulega hefði orðið um líkamsleifar Hitlers og meira að segja komust á kreik sögusagnir um að hann hefði ekki látið lífið heldur komist undan. Eftir að rússnesk skjöl sem málið snertu voru gerð opinber árið 1993 eru flestir sagnfræðingar þó nokkuð sammála um endalok Hitlers.

Eftir að Hitler og Eva höfðu svipt sig lífi voru lík þeirra flutt út í garð utan við Führerbunker, byrgið þar sem Hitler hafði hafst við, bensíni hellt yfir og kveikt í. Eldurinn eyddi líkamsleifunum þó ekki fullkomlega og þegar Sovétmenn komu á staðinn nokkrum dögum seinna komust leifarnar í hendur þeirra. Eftir krufningu fluttu þeir leifarnar með sér til borgarinnar Magdeburg í austurhluta Þýskalands þar sem líkin voru grafin í ómerktri gröf og staðsetningunni haldið leyndri.
Árið 1970 stóð til að Sovétmenn afhentu Austur-Þjóðverjum bygginguna sem líkamsleifar Hitlers voru grafnar við. Áður en að því kom voru þær grafnar upp, brenndar þar til askan ein var eftir og henni svo dreift í ána Elbe. Með þessu vildu Sovétmenn koma í veg fyrir að gröf Hitlers yrði einhvers konar helgidómur nýnasista.
Heimild og mynd:
- Death of Adolf Hitler á Wikipedia, the free encyclopedia
- Magdeburg á Wikipedia, the free encyclopedia
Lesendur hafa nokkrum sinnum sent Vísindavefnum spurningar um dauða Adolfs Hitlers. Meðal annars:
- Getur við verið visst um að Hitler sé dauður (að hann hafi dáið þegar fólk segir að hann hafi dáið)?
- Hvað varð um Hitler? Hefur líkami hans nokkuð fundist og hvernig framdi hann sjálfsmorð?
- Hvað varð um lík Adolfs Hitlers?
- Eru til áreiðanlegar heimildir að Hitler hafi framið sjálfsmorð?
Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur15.5.2006
Flokkun:
Efnisorð
Tilvísun
EDS. „Hvar er Adolf Hitler grafinn?“. Vísindavefurinn 15.5.2006. http://visindavefur.is/?id=5930. (Skoðað 18.6.2013).
Höfundur
EDSlandfræðingur og starfsmaður Vísindavefsins




