Spurning

Til hvers fara unglingar eiginlega á gelgjuskeiðið?

Spyrjandi

Ingibjörg Halldórsdóttir, f. 1994

Svar

Sigurlína Davíðsdóttir hefur skrifað tvör svör á Vísindavefnum um unglinga og gelgjuskeið. Hún segir að aðalviðfangsefni unglingsáranna sé að skapa sér sjálfsmynd og átta sig á því hver maður sé. Í upphafi unglingsáranna er gildismat unglingsins byggt að mestu á gildimati foreldranna, eins og eðlilegt er. Þegar hann fer að breytast úr barni í ungling finnur hann að hann getur ekki samþykkt öll gildi foreldra sinna á þess að hann hafi fundið sín eigin gildi. Til þess að uppgötva sitt eigið gildismat þarf hann að vita hver hann er og hann fer í sjálfskönnun.

Sigurlína segir að þetta ferli geti verið erfitt:
Meðan á þessu stendur er unglingurinn gjarnan að máta nýjar og nýjar sjálfsmyndir til að athuga hvað hann heldur að henti sér best. Einn daginn geta foreldrarnir mætt pönkara með fjólublátt hár, nælur í eyrum og uppreisnargjörnum í meira lagi, þótt næsta dag sé aftur kominn á heimilið fyrirmyndarunglingur með sléttgreitt hár, í skólabolnum sínum, önnum kafinn að læra fyrir næsta dag.
Hægt er að lesa meira um gelgjuskeiðið í svörum Sigurlínu við spurningunum:

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur15.5.2006

Tilvísun

JGÞ. „Til hvers fara unglingar eiginlega á gelgjuskeiðið?“. Vísindavefurinn 15.5.2006. http://visindavefur.is/?id=5926. (Skoðað 26.5.2013).

Höfundur

JGÞbókmenntafræðingur og ritstjóri Vísindavefsins



Leit


Vísindadagatalið

Pjotr Kropotkin
(1842-1921)
( Fyrri Næsti )

Rússneskur dýrafræðingur, landfræðingur, þróunarfræðingur og talsmaður stjórnleysisstefnu. Ritverk hans eru bæði á sviði stjórnmála og vísinda.

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans