Spurning

Hvað er dvalargró?

Spyrjandi

Magdalena Rut, f. 1997

Svar

Dvalargró (e. endospore) eða sporar eru hylki sem svonefndar gram-jákvæðar bakteríur af nokkrum ættkvíslum mynda sem viðbrögð við óhagstæðum umhverfisskilyrðum. Breytingar á nánasta umhverfi bakteríanna svo sem á sýrustigi, hitastigi eða þurrki virka sem hvati til þess að bakteríurnar myndi dvalargró og bíði af sér þessa „vistkreppu“. Þegar skilyrðin batna kemur bakterían úr gróinu og kallast það spírun.

Dvalargró þola mjög öfgakenndar aðstæður, þau eru hitaþolin, geislaþolin og geta þolað mikinn þurrk enda er tilgangur þeirra að bakterían komist yfir erfitt tímabil í ótilgreindan tíma, jafnvel ár eða aldir. Á meðan bakterían er í gróinu stöðvast efnaskipti hennar og hún hefur engin samskipti við umhverfi sitt.



Dvalargrómyndun finnst aðeins innan fylkingar Firmicutes sem telur tæplega 300 ættkvíslir. Kunnar ættkvíslir þessarar fylkingar sem mynda dvalargró eru Bacillus, Clostridium og Paenibacillus.

Þess má geta að dvalargró miltisbrandsbakteríunnar Bacillus antrhacis voru notuð í nokkrum „árásum“ í Bandaríkjunum og víðar árið 2001. Gróin voru á duftformi en þegar þau komast í „lífvænlegt“ umhverfi og spíra þá geta þau valdið hinum lífshættulega miltisbrandi.

Mynd:

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur1.11.2011

Tilvísun

Jón Már Halldórsson. „Hvað er dvalargró?“. Vísindavefurinn 1.11.2011. http://visindavefur.is/?id=59225. (Skoðað 20.6.2013).

Höfundur

Jón Már Halldórssonlíffræðingur



Leit


Vísindadagatalið

Marteinn Lúter
(1483-1546)
( Fyrri Næsti )

Þýskur guðfræðingur, oft talinn upphafsmaður siðaskiptanna. Andmælti aflátssölu og valdi páfans, taldi Biblíuna einu heimildina um orð Guðs og lagði áherslu á lestur hennar.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans