Spurning

Hver var greindarvísitala Adolfs Hitlers?

Spyrjandi

Kristján Wilhelm Gunnarsson, f. 1997

Svar

Adolf Hitler gékkst ekki undir geindarpróf svo vitað sé og því er ekki til áreiðanleg tala sem segir til um gáfnafar hans. Hins vegar hafa margir leitt hugann að þessu og reynt að meta gáfur hans.

Greindarvísitala (e. intelligence quotient, IQ) Hitlers er talin hafa verið á bilinu 138-145 og er oftast vísað í töluna 141 í þessu samhengi. Samkvæmt svari við spurningunni Hver er greindarvísitala meðalmanneskju og hvenær er hún orðin óeðlilega lág eða há? þá myndi Hitler hafa verið bráðger, það er að segja mjög hæfileikaríkur og langt yfir meðallagi greindur. Sumir myndu jafnvel vilja kalla hann snilling þó flestir láti það ósagt í ljósi þeirra hörmunga sem dundu á heiminum í seinni heimstyrjöldinni fyrir tilstuðlan Hitlers. Talið er að einungis 1 af hverjum 200-300 einstaklingum séu með greindarvísitölu 141 og hærri.

Frekara lesefni á Vísindavefnum:
Heimildir:

Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur17.3.2011

Tilvísun

EE. „Hver var greindarvísitala Adolfs Hitlers?“. Vísindavefurinn 17.3.2011. http://visindavefur.is/?id=58910. (Skoðað 18.5.2013).

Höfundur

EE



Leit


Vísindadagatalið

Ólafur Björnsson
(1912-1999)
( Fyrri Næsti )

Hagfræðingur og stjórnmálamaður, samdi mörg rit um þjóðhagfræði og skyld svið og þýddi einnig erlend rit. Var um langa hríð mikilvægur ráðgjafi stjórnvalda.

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans