Spurning

Við erum í bekk 52 í Hólabrekkuskóla og langar til að vita hvað elsti maður í heimi sé gamall?

Spyrjandi

Sunneva Jörundsdóttir

Svar

Sæl, nemendur í Hólabrekkuskóla.

Langlífi hefur löngum heillað mannfólkið og þá einkum ástæður þess. Hægt er að lesa meira um það í svarinu Hvers vegna geta sumir reykt tóbak í 70-80 ár án þess að það hafi sýnileg áhrif til heilsubrests á þá?

Þegar þetta er skrifað er bandaríska konan Besse Cooper elsta núlifandi manneskjan. Hún fæddist í Tennessee-fylki hinn 26. ágúst 1896. Besse Cooper hefur verið elst síðan 31. janúar árið 2011 en þá lést Eunice Sanborn, 114 ára og 195 daga gömul. En Besse Cooper er þó einungis 114 ára og 183 daga gömul.

Besse Cooper fagnar hér 113 ára afmæli sínu ásamt tengdadóttur sinni.

Elsti núlifandi maðurinn er Walter Breuning en hann fæddist 21. september árið 1896 í Minnesota-fylki í Bandaríkjunum. Hann er einnig næstelsti núlifandi einstaklingurinn á eftir áðurnefndri Besse Cooper.

Franska konan Jeanne Calment á heiðurinn af því að hafa lifað lengst allra en hún varð 122 ára og 164 daga er hún lést hinn 4. ágúst árið 1997.

Miklar deilur hafa þó komið upp í sambandi við langlífi manna. Til að mynda er nú efast um aldur Shigechiyo Izumi en hann hefur lengi verið talinn langlífasti maðurinn. Izumi lést 21. febrúar árið 1986 en sumir telja hann fæddan árið 1865.

Á lista yfir elsta fólk veraldar er nær eingöngu að finna íbúa Vesturlanda og Japans. Þannig er erfitt að segja með fullri vissu að áðurnefndir aðilar séu eða hafi verið þeir elstu. Enn fremur eru fæðingarvottorð jafnmisjöfn og þau eru mörg og þannig vandkvæðum bundið að segja til um sannleiksgildi þeirra allra. Menn geta einmitt haft mikinn hag af því að vera elstir allra, bæði hvað varðar athygli umheimsins og mögulegan gróða. Ekki er heldur loku fyrir það skotið að fyrr á öldum hafi einhver náð hærri aldri. Meðalaldur manna hefur þó aukist mikið á síðustu öld.

Rétt er að árétta að svar þetta er fljótt að úreltast en finna má þann lista sem hafður var til hliðsjónar hér að neðan.

Frekara lesefni á Vísindavefnum: Heimildir: Mynd:
Spurningin í heild sinni hljóðaði svona:
Við erum í bekk 52 í Hólabrekkuskóla að læra á vefinn. En okkur langar að vita hvað elsti maður í heimi sé gamall?

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur25.2.2011

Tilvísun

Ívar Daði Þorvaldsson. „Við erum í bekk 52 í Hólabrekkuskóla og langar til að vita hvað elsti maður í heimi sé gamall?“. Vísindavefurinn 25.2.2011. http://visindavefur.is/?id=57889. (Skoðað 20.6.2013).

Höfundur

Ívar Daði Þorvaldssonháskólanemi og starfsmaður Vísindavefsins



Leit


Vísindadagatalið

Marteinn Lúter
(1483-1546)
( Fyrri Næsti )

Þýskur guðfræðingur, oft talinn upphafsmaður siðaskiptanna. Andmælti aflátssölu og valdi páfans, taldi Biblíuna einu heimildina um orð Guðs og lagði áherslu á lestur hennar.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans

Háskóli unga fólksins 2013