Spurning
Hvað getur þú sagt mér um lungun og hvað öndum við mörgum lítrum af lofti að okkur á sólarhring?
Spyrjandi
Ásthildur Ólöf Ríkarðsdóttir, Sævar Einarsson
Svar
Lungun eru tveir svampkenndir, loftfylltir pokar sitt hvorum megin í brjóstholinu. Þau eru helstu öndunarfæri líkamans. Barkinn leiðir innöndunarloft ofan í lungun en hann klofnar í tvær berkjur sem síðan greinast í sífellt minni berklur í hvoru lunga. Á endum minnstu berklnanna eru klasar af blöðrum, svokölluðum lungnablöðrum. Hver lungnablaðra er 200-300 µm í þvermáli.Það er hlutverk lungna að koma súrefni innöndunarloftsins í blóðrásina og losa koltvíildi (koltvíoxíð) úr blóðinu. Þetta fer fram með flæði á þessum lofttegundum milli blóðs í háræðum og lofts í lungnablöðrunum. Súrefni og koltvíildi flæða þá úr meiri styrk í minni, það er súrefni úr lungnablöðrum í blóðið og koltvíildið öfuga leið. Það eru aðeins tvö frumulög sem skilja þessi tvö hólf að. Veggur háræðanna er aðeins eitt frumulag á þykkt og veggur lungnablaðranna sömuleiðis.
Til þess að flæði gangi sem best er yfirborð lungnablaðranna gífurlega stórt eða samtals um 75 m2. Súrefnið berst síðan með blóðinu til frumna líkamans sem nota það við bruna en þá er orka losuð úr orkugjöfum eins og sykri og fitu til að reka starfsemi líkamans. Við bruna og aðra frumustarfsemi myndast koltvíildi sem er úrgangsefni og líkaminn þarf að losa sig við. Koltvíildi berst út í blóðið sem flytur það til lungnanna þaðan sem það fer út úr líkamanum með útöndun.

Utan um lungun er himna, brjósthimna eða fleiðra. Önnur slík himna þekur brjóstholið að innan. Milli þessara tveggja himna er vökvi sem gerir hreyfingar lungnanna við inn- og útöndun þjálar og auðveldar. Brjósthimna lungnanna er tengd vöðvum í brjóstholinu, þindinni og rifjavöðvum. Þessir vöðvar eru oft kallaðir öndunarvöðvar. Þegar þeir dragast saman toga þeir í lungun sem þenjast þá út og rúmmál lungnanna eykst. Það hefur í för með sér að loftþrýstingur í þeim fellur. Loft dregst þá inn í lungun úr andrúmsloftinu þar sem þrýstingurinn er meiri. Við öndum sem sagt inn. Það öfuga gerist þegar öndunarvöðvarnir slakna. Þá þrýsta þeir á lungun, rúmmál lungna minnkar og loftþrýstingur eykst. Loft streymir þá út úr lungunum í andrúmsloftið þar sem þrýstingur er nú minni; við öndum sem sagt út.
Við þurfum ekki að hugsa um að anda. Öndun er stjórnað af öndunarstöðinni, sem er sjálfvirk miðstöð í mænukylfu heilans. Hún fær boð um súrefnis- og koltvíildisstyrk í blóði frá efnanemum í ósæð og hálsslagæðum og um koltvíildisstyrk í heila- og mænuvökva frá efnanema í mænukylfu. Ef styrkur koltvíildis eykst er öndunin aukin, bæði tíðni og dýpt. Efnanemarnir eru einnig næmir á sýrustig blóðs og heila- og mænuvökva og auka öndun ef þessir vökvar verða súrari en það gerist ef koltvíildisstyrkur eykst. Þannemar í lungnavegg og brjóstholi senda boð til öndunarstöðvar ef lungun þenjast of mikið út. Það stöðvar innöndun og kemur af stað útöndun. Þetta viðbragð kemur í veg fyrir skemmdir á lungunum. Koltvíildisstyrkur er sá þáttur sem skiptir mestu máli fyrir stjórnun öndunar. Súrefnisskortur kemur mun sjaldnar inn í myndina þar sem áhrif koltvíildis á öndun leiða til þess að hann kemur yfirleitt ekki fyrir.
Við öndum 15 til 25 sinnum á mínútu um það bil hálfum lítra af lofti í hvert sinn. Þetta samsvarar um 25.000 sinnum á sólarhring og 12.500 lítrum. Við áreynslu eykst öndunartíðnin og einnig öndunarloftið í hverjum andardrætti. Lungun eru gífurlega mikilvæg líffæri og vinna mjög náið með blóðrásinni. Það eru margir sjúkdómar sem geta herjað á lungun en við getum verndað þau með því að reykja ekki og forðast reyk frá öðrum og aðra mengun.
Frekari fróðleikur á Vísindavefnum:
- Hvernig flyst koltvíoxíð frá vefjum til lungna? eftir Þuríði Þorbjarnardóttur.
- Hvernig er hringrás blóðsins? eftir Þuríði Þorbjarnardóttur.
- Hvað er berkjubólga? eftir Berglindi Júlíusdóttur.
- Hvað er lungnaþemba og hverjar eru afleiðingar hennar? eftir Magnús Jóhannsson.
- Hvernig myndast lungnakrabbamein? eftir Höllu Skúladóttur.
- WebMD.
- Mama's Health
- MedicineNet
- Discovery Health
- Mynd: Encyclopædia Britannica Online. Íslenskur texti settur inn af ritstjórn Vísindavefsins.
Upprunalega hljóðaði spurningin svona:
Hvað er mikilvægt að vita um lungun í okkur, hvert er hlutverk þeirra?
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur8.3.2011
Flokkun:
Efnisorð
Tilvísun
Þuríður Þorbjarnardóttir. „Hvað getur þú sagt mér um lungun og hvað öndum við mörgum lítrum af lofti að okkur á sólarhring?“. Vísindavefurinn 8.3.2011. http://visindavefur.is/?id=57622. (Skoðað 24.5.2013).
Höfundur
Þuríður Þorbjarnardóttirlíffræðingur





