Spurning
Er guð til?
Spyrjandi
Klaudia Halina, f. 1996
Kristófer Reyes, f. 1997
Svar
Vísindavefurinn fær reglulega sendar fyrirspurnir frá lesendum sínum um tilvist æðri máttarvalda. Vitanlega eru menn ekki sammála um það hvort guð sé til eða ekki. Þeir sem svara spurningunni játandi hafa mismunandi skoðanir á því hvað einkenni þá þennan guð eða jafnvel guði. Þetta sést best á því hversu margvísleg trúarbrögðin eru.Hvað segja þá vísindin um þessa spurningu? "Ekkert!" myndu allmargir vísindamenn svara. Margir þeirra telja nefnilega að spurningar um guð séu í eðli sínu fyrir utan verksvið vísinda; vísindin fjalla um það sem er náttúrulegt, það sem er hlutlægt og hægt er að kanna og mæla. Guði er aftur á móti oft lýst sem einhverju yfirnáttúrulegu, sem lýtur engum lögmálum, sem er huglægt og ekki er hægt að bregða neinni mælistiku á. Því myndu margir segja að "vegir guðs væru órannsakanlegir".

Ekki eru þó allir á sama máli um þetta. Vithönnunarsinnar hafa til að mynda reynt að leita staðfestingar á íhlutun guðs með aðferðum sem þeir telja vísindalegar en flestir aðrir innan fræðasamfélagsins telja til gervivísinda eða hjáfræða. Nánar má lesa um þetta í svari Steindórs J. Erlingssonar og Þorsteins Vilhjálmssonar við spurningunni Geta vísindamenn útilokað vithönnun (intelligent design) sem upphaf lífsins?
Enn aðrir telja að vísindin hafi einmitt sýnt fram á að guð sé ekki til; tilvist hans sé í andstöðu við það sem vitað er um heiminn. Að lokum eru þeir sem segja að trú þurfi engra vísindalegra sannana við. Orðið trú þýðir í raun traust eða sannfæring, sem felur í sér að þeir sem trúa treysti því að þeirra guð eða guðir séu til, óháð því hvað vísindin segja.
Fyrst engin eining ríkir um svarið við spurningunni "Er guð til?", er þá allt eins gott að gefast bara upp á henni og sætta sig við að maður muni aldrei vita svarið? Höfundur telur að svo sé ekki endilega heldur hvetur miklu fremur alla sem þetta lesa til að reyna að svara spurningunni hver fyrir sig. Sé fólk í vafa er gott að taka upplýsta afstöðu með því að kynna sér sem flest sjónarmið og rök með og á móti tilvist guðs. Góður staður til að hefja leitina er einmitt Vísindavefurinn!
Frekara lesefni:
Tilvist Guðs
- Er hægt að sanna að guð sé til? eftir Þorstein Vilhjálmsson
- Er hægt að sanna það sagnfræðilega að Jesús Kristur hafi verið til? eftir Sverri Jakobsson.
- Er til einhver guð, annars staðar en í hausum fólks? eftir Róbert Haraldsson.
- Hvað gerist ef vísindin sanna að Guð er ekki til og var aldrei til? eftir Hjalta Hugason.
- Hver fann upp Jesú? eftir Einar Sigurbjörnsson.
- Hver fann upp Jesú? eftir Eyju Margréti Brynjarsdóttur.
- Hvernig er sönnun Pascals á því að betra sé að trúa á Guð? eftir Atla Harðarson.
- Hvernig getur Guð verið dáinn ef hann fæddist aldrei? eftir Róbert Haraldsson.
- Ef Guð er almáttugur getur hann þá búið til svo stóran stein að hann geti ekki lyft honum? eftir Bjarna Randver Sigurvinsson.
- Ef Guð er almáttugur getur hann þá búið til svo stóran stein að hann geti ekki lyft honum? eftir Eyju Margréti Brynjarsdóttur.
- Er alveg víst að himnaríki sé til? eftir HMH.
- Er himnaríki til? eftir Hauk Má Helgason og Sigurjón Árna Eyjólfsson.
- Er hægt að sanna eða afsanna vísindalega einhver algeng trúarbrögð, svo sem kristni eða islam? eftir Ólaf Pál Jónsson.
- Er líf eftir dauðann? eftir Pétur Pétursson.
- Er Satan til? eftir Hauk Má Helgason og Sigurjón Árna Eyjólfsson.
- Er það innbyggt í mennina að trúa á yfirnáttúruleg öfl? eftir Harald Ólafsson
- Hver er skilgreiningin á trúleysingja? eftir Eyju Margréti Brynjarsdóttur.
- Hver er skoðun Humes á Guði? eftir Egil Arnarson.
- Samrýmist það vísindalegri hugsun að lífverur hafi þróast úr dauðum efnum án sköpunar? eftir Guðmund Eggertsson.
- Skapaði Guð mennina eða urðu þeir til af öpum? eftir Hauk Má Helgason og Þorstein Vilhjálmsson.
- Image:Fra Bartolomeo 002.jpg. Wikipedia, frjálsa alfræðiorðabókin. Myndin er birt undir leyfinu GNU Free Documentation License.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur16.3.2006
Flokkun:
Efnisorð
Tilvísun
HMS. „Er guð til?“. Vísindavefurinn 16.3.2006. http://visindavefur.is/?id=5713. (Skoðað 20.5.2013).
Höfundur
HMSB.A. í sálfræði og doktorsnemi í taugavísindum við Brown University




