Spurning
Getur fólk fengið einkirningasótt þótt búið sé að fjarlægja hálskirtla?
Spyrjandi
Írena Jónsdóttir, f. 1995
Svar
Já, það er hægt að fá einkirningasótt (mononucleosis infectiosa) án þess að vera með hálskirtla. Hálskirtlarnir eru í raun ekki kirtlar heldur eitilvefur aftarlega í hálsinum. Þetta er ekki eini eitilvefurinn í hálsi því þar finnast einnig stakir eitlar sem líkt og hálskirtlarnir eru hluti af ónæmiskerfinu. Við margar sýkingar, líkt og einkirningasótt, bólgna hálskirtlarnir og stakir eitlar í hálsi, sem og víðar í líkamanum. Bólgnir og aumir hálskirtlar eru því ekki orsök einkirningasóttar heldur afleiðing hennar.Einkirningasótt er veirusýking af völdum Ebstein-Barr-veirunnar sem finnst í munnvatni. Hún smitast manna á milli með kossum en getur lifað utan líkamans í nokkrar klukkustundir. Um 30-50 dagar líða á milli þess sem einstaklingur smitast og þess að einkenni komi fram. Helstu einkenni einkirningasóttar eru þreyta og slappleiki, hiti, höfuðverkur, særindi í hálsi, aumir vöðvar, útbrot og kviðverkir sem stafa af bólgnu milta, auk þess sem lifur getur bólgnað.
![]() |
Engin lækning er til við sýkingunni, heldur miðast meðferð við að minnka einkenni á meðan að líkaminn myndar mótefni gegn veirunni. Hiti hverfur oftast á innan við 10 dögum, milta og lifur hætta að vera bólgin á um 4 vikum og þreyta hverfur oftast á nokkrum vikum en getur enst í 2-3 mánuði. Á meðan milta er enn bólgið skal forðast að stunda íþróttir þar sem það gæti sprungið vegna álagsins.
Einstaklingar með einkirningasótt eru smitandi á meðan að þeir hafa einkenni og í allt að nokkra mánuði eftir á. Mótefnið sem myndast gegn veirunni endist ævilangt svo þeir sem einu sinni hafa fengið einkirningasótt fá hana aldrei aftur.
Heimild: Mynd:
- en.wikipedia.org. Sótt 1.5.2012.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur2.5.2012
Efnisorð
einkirningasótt hálskirtlar eitilvefur veirusýking kossar einkenni meðferð smitandi ævilangt mótefni
Tilvísun
Þórdís Kristinsdóttir. „Getur fólk fengið einkirningasótt þótt búið sé að fjarlægja hálskirtla?“. Vísindavefurinn 2.5.2012. http://visindavefur.is/?id=56705. (Skoðað 21.5.2013).
Höfundur
Þórdís Kristinsdóttirnemi í læknisfræði við HÍ






