Spurning

Átti Hitler konu og börn?

Spyrjandi

Björg Sóley Kolbeinsdóttir, f. 1997, Ástrós Óladóttir, Salvör Sæmundsdóttir

Svar

Adolf Hitler, leiðtogi þýska nasistaflokksins og kanslari Þýskalands, átti eiginkonu í tæpa tvo sólahringa. Þann 29. apríl 1945 gekk hann í hjónaband með Evu Braun, ástkonu sinni til margra ára. Þann 30. apríl sviptu þau sig lífi, hún tók inn blásýru en talið er að Hitler hafi skotið sig strax eftir að hafa tekið inn blásýru. Hitler átti engin börn.


Hitler og Eva Braun voru hjón tæpa tvo sólahringa.

Þar sem Hitler var barnlaus eru engir beinir afkomendur frá honum komnir. Hann átti fimm alsystkini en aðeins systir hans, Paula (1896-1960), lifði fram á fullorðinsár. Hún giftist aldrei og átti engin börn og það sama er að segja um bróður hennar. Hins vegar átti Hitler tvö hálfsystkini, Alios (1882-1956) og Angelu (1883-1949), sem bæði gengu í hjónaband og eignuðust afkomendur.

Frekari fróðleikur á Vísindavefnum: Heimildir og mynd:Í heild sinni hljóðaði spurningin svona:
Átti Hitler einhver börn? Eða konu? Ef svo er hvernig dóu þau og hvað hétu þau?

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur13.4.2010

Tilvísun

EDS. „Átti Hitler konu og börn?“. Vísindavefurinn 13.4.2010. http://visindavefur.is/?id=55661. (Skoðað 20.6.2013).

Höfundur

EDS



Leit


Vísindadagatalið

Marteinn Lúter
(1483-1546)
( Fyrri Næsti )

Þýskur guðfræðingur, oft talinn upphafsmaður siðaskiptanna. Andmælti aflátssölu og valdi páfans, taldi Biblíuna einu heimildina um orð Guðs og lagði áherslu á lestur hennar.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans

Háskóli unga fólksins 2013