Spurning

Mundi gos í Eyjafjallajökli geta breytt Seljalandsfossi, árfarvegi eða útliti?

Spyrjandi

Jón Hilmar Hálfdánarson

Svar

Hraunrennsli frá Eyjafjallajökli sem næði niður að Seljalandsfossi kæmi helst úr gossprungum vestan til á þessu eldstöðvakerfi, vestan jökulhettunnar, en þar hefur ekki gosið í mörg þúsund ár og engin merki eru um að kvika sé að leita þangað. Hraun úr gosi á þeim slóðum, ef til kæmi, gæti breytt árfarvegi og fossi.

Hraun renna eftir lægðum í landinu og leita gjarnan í árfarvegi og geta runnið langar leiðir eftir þeim.


Ekkert bendir til þess að hraun frá eldgosinu á Fimmvörðuhálsi sem hófst í mars 2010 hafi áhrif á Seljalandsfoss.

Frekari fróðleikur á Vísindavefnum: Mynd: Mats: Íslandsmyndasafn © Mats Wibe Lund

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur31.3.2010

Tilvísun

Guðrún Larsen. „Mundi gos í Eyjafjallajökli geta breytt Seljalandsfossi, árfarvegi eða útliti?“. Vísindavefurinn 31.3.2010. http://visindavefur.is/?id=55598. (Skoðað 25.5.2013).

Höfundur

Guðrún Larsenjarðfræðingur á Jarðvísindastofnun HÍ



Leit


Vísindadagatalið

Kristján Eldjárn
(1916-1982)
( Fyrri Næsti )

Fornleifafræðingur og síðar forseti, skrifaði m.a. bókina Kuml og haugfé 1957 og átti mikinn þátt í að efla áhuga á fornleifafræði hér á landi.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans