Spurning
Geta karlmenn klárað sæðið í sér eða býr líkaminn alltaf til meira?
Spyrjandi
Eiður Smári Elfarsson
Svar
Það er ekki svo að líkami karlmanna geti bara myndað tiltekið magn af sæði yfir ævina. Ef allt er eðlilegt heldur framleiðslan áfram alla ævi, sama hversu mikið ,,af er tekið” þó vissulega dragi úr henni þegar aldurinn færist yfir.Sæði er myndað í æxlunarkerfi karls þegar kynþroska er náð. Sæði inniheldur sáðfrumur en auk þess sáðvökva frá blöðruhálskirtli, sáðblöðrum og klumbukirtlum. Það sem kemur þessu öllu í gang eru kynstýrihormón frá kirtildingli heilans.

Þegar tími er kominn fyrir þroskun æxlunarkerfisins seyta sérstakar taugaseytifrumur í undirstúku heilans losunarhormóni kynstýrihormóna. Það berst til kirtildinguls heilans og örvar hann til að mynda og seyta tvenns konar kynstýrihormónum. Annað þeirra, ESH (e. FSH), berst til sáðpíplna í eistum og örvar frumur í þeim til að mynda sáðfrumur. Hitt kynstýrihormónið, GSH (e. LH), berst til svokallaðra millifrumna í eistum og örvar þær til að mynda karlkynhormón, andrógen (testósterón og dihýdrótestósterón=DHT).
Testósterón veldur þeim síðkomnu kyneinkennum sem koma fram þegar strákar verða kynþroska, það er vaxtarkipp, hárvexti í framan, á bringu, í handarkrikum og í kringum kynfæri, stækkun barkakýlis og dýpkun raddar í kjölfarið, aukinni virkni fitukirtla í húð og kynhvöt. Einnig er testósterón nauðsynlegt ásamt ESH til að sáðfrumumyndun fari í gang. DHT veldur stækkun og þroskun ytri kynfæranna.
Þegar sáðfrumumyndun er komin vel í gang fara frumurnar sem mynduðu sáðfrumurnar að mynda hormónið inhibín sem berst með blóðinu til kirtildinguls og hindra hann í að seyta ESH. Einnig hefur aukinn testósterónstyrkur blóðs hindrandi áhrif á seyti GSH. Með slíkri neikvæðri afturverkun dregur úr myndun sáðfrumna og testósteróns. Með stjórnun af þessu tagi helst myndun sáðfrumna og sæðis nokkuð jöfn eftir að hún er komin í gang.
Á hverjum degi myndast um það bil 300 milljónir sáðfrumna. Við sáðlát losna um 2,5 til 5 millilítrar af sæði en hver millilítri inniheldur 50-150 milljón sáðfrumur.
Heilbrigðir karlmenn geta verið frjóir fram á ní- eða tíræðisaldur. Í kringum 55 ára aldur minnkar myndun testósteróns og í kjölfarið dvínar vöðvastyrkur, færri lífvænlegar sáðfrumur eru myndaðar og það dregur úr kynhvöt, en þó getur verið nóg af sáðfrumum fram í háa elli.
Frekari fróðleikur á Vísindavefum:
- Við hvaða hitastig lifir sæði?
- Er hægt að lifa án hormóna?
- Hvernig breytist líkami stráka við kynþroska?
- Tortora, Gerald J. og Derrickson, Bryan. Introduction to the Human Body – the essentials of anatomy and physiology 7. útgáfa, John Wiley & sons, Inc., U.S.A., 2007.
- Mynd: Cosmos. Sótt 30. 3. 2010.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur31.3.2010
Efnisorð
sæði sáðfrumur sáðvökvi hormón framleiðsla testósterón kynþroski
Tilvísun
Þuríður Þorbjarnardóttir. „Geta karlmenn klárað sæðið í sér eða býr líkaminn alltaf til meira?“. Vísindavefurinn 31.3.2010. http://visindavefur.is/?id=55179. (Skoðað 25.5.2013).
Höfundur
Þuríður Þorbjarnardóttirlíffræðingur





