Spurning
Geta konur orðið óléttar þótt þær hafi aldrei farið á túr?
Spyrjandi
Marín Helga Jónsdóttir
Svar
Já, konur geta orðið óléttar án þess að hafa farið nokkurn tímann á túr. Reyndar er ólíklegt að þetta eigi við um fullorðnar konur en getur vel komið fyrir ungar stúlkur sem eru enn ekki byrjaðar að hafa blæðingar.Konur fara á túr ef undirbúningur legsins fyrir fóstur er til einskis, það er að segja ef frjóvgun á sér ekki stað. Til að kona verði ólétt þarf hún fyrst að hafa egglos og svo þarf sáðfruma að frjóvga eggið. Á meðan undirbýr legið sig undir að taka á móti fóstri sem þroskast úr þessu frjóvgaða eggi. Ef ekkert fóstur hefur myndast er þessi undirbúningur til einskis og konan fer á túr, það er losar sig við blóð og aðra vefi úr leginu. Ef egg konu hefur aftur á móti frjóvgast er legið tilbúið að taka á móti því og verður heimkynni vaxandi fósturs næstu níu mánuði eða svo.

Af þessu ætti að vera ljóst að kona getur orðið ólétt á undan fyrstu tíðum. Egglos verður að jafnaði um tveimur vikum á undan blæðingum.
Frekari fróðleikur á Vísindavefnum:
- Hvernig verðum við til? eftir Þuríði Þorbjarnardóttur
- Getur kona haft blæðingar þó að hún sé ófrísk? eftir Emilíu Dagnýju Sveinbjörnsdóttur
- Er hægt að verða ófrísk á meðan blæðingar standa yfir? eftir Þuríði Þorbjarnardóttur
- Af hverju hafa konur blæðingar? eftir Þuríði Þorbjarnardóttur
- Af hverju verða karlmenn ekki óléttir? eftir EDS
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur3.9.2010
Tilvísun
Þuríður Þorbjarnardóttir. „Geta konur orðið óléttar þótt þær hafi aldrei farið á túr?“. Vísindavefurinn 3.9.2010. http://visindavefur.is/?id=54626. (Skoðað 21.5.2013).
Höfundur
Þuríður Þorbjarnardóttirlíffræðingur





