Spurning
Hvernig getur maður sem tengdur er við gangráð dáið?
Spyrjandi
Karl Gunnarsson
Svar
Til að geta lifað er ekki nóg að hjartað slái. Blóðið sem það dælir þarf einnig að innihalda nógu mikið súrefni til að næra vefi líkamans og hjartadælan þarf að vera nógu öflug til að dreifa blóði til allra vefja. Ef súrefni skortir í blóð til dæmis vegna lungnabjúgs getur það leitt til dauða og ef rof verður á stórri æð getur einstaklingi blætt út og hann dáið.Einstaklingar með vel starfandi gangráð geta einnig dáið úr hjartabilun. Gangráðurinn heldur þá áfram að senda boð til hjartans en ef vöðvinn bregst ekki við eða boðin berast ekki rétt eftir leiðslukerfi hjartans getur það ýmist stöðvast alveg eða það nær ekki að dæla nægu blóði til heilans sem veldur dauða. Gervigangráðar hafa ekki endurlífgunarhæfni og boð frá þeim nægja ekki til að láta hjarta sem hefur stoppað slá á ný.
![]() |
Margir halda að gangráður lengi dauðaferlið hjá alvarlega veiku fólki en almennt halda þeir deyjandi sjúklingum ekki á lífi. Dánarorsök er þá oft blóðsýking, blóðreki í lungum, blæðing eða hjartsláttartruflun af völdum brenglaðra efnaskipta vegna langt gengins krabbameins, lifrar- eða nýrnabilunar. Á dánarstundu er hjartavöðvavefurinn oftast orðinn svo þykkur að hann bregst ekki við boðum frá gangráðinum.
Mjög sjaldan er lagt til að aftengja gangráð. Helst er það tekið til athugunar hjá fólki með óafturkræfa vitsmunabilun þar sem gangráðurinn er ekki í samræmi við markmið meðferðar sem er að auka lífsgæði sjúklings. Í öðrum tilfellum er þetta sjaldnast talinn möguleiki þar sem afvirkjun veldur einkennum versnandi hjartabilunar, svo sem þreytu, andnauð og svima. Ólíkt því sem margir halda leiðir afvirkjun ekki til snöggs og sársaukalauss dauða þar sem mjög fáir sjúklingar eru 100% háðir gangráði.
Heimild: Mynd:
- en.wikpedia.org - Artificial cardiac pacemaker. Sótt 10.2.2012.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur20.2.2012
Efnisorð
gangráður hjarta blóð súrefni hjartadæla hjartabilun gervigangráður dauðaferli hjartavöðvavefur aftengja
Tilvísun
Þórdís Kristinsdóttir. „Hvernig getur maður sem tengdur er við gangráð dáið?“. Vísindavefurinn 20.2.2012. http://visindavefur.is/?id=54465. (Skoðað 19.6.2013).
Höfundur
Þórdís Kristinsdóttirnemi í læknisfræði við HÍ
Prenta
Senda
Frekara lesefni á Vísindavefnum:
- Hvað gerir hjartað og hvað veldur hjartaáfalli?
- Hvernig er hringrás blóðsins?
- Hvers vegna er munur á þykkt hægri og vinstri hjartaveggjar?
- Hvernig verkar hjartalínurit?
- Hversu oft slær hjartað á mínútu?
- Hver er eðlilegur blóðþrýstingur?
- Getið þið sagt okkur allt um gervigangráð og gangráðsísetningar?
- Hvaða áhrif hefur gangráður á venjulegt líf fólks?






