Spurning
Hver er íbúafjöldi Jamaíku?
Spyrjandi
Svava Björk Hróbjartsdóttir, f. 1997
Svar
Á Jamaíku bjuggu 2.682.100 manns í lok árs 2007 samkvæmt upplýsingum frá hagstofu landsins.Jamaíka er eyja sunnan af Kúbu. Höfuðborgin heitir Kingston. Eyjan er þriðja stærsta eyja Karíbahafs, 240 km að lengd, 80 kílómetra breið og 10.991 km² að flatarmáli. Hún er hálend eldfjallaeyja og þar er hitabeltisloftslag.

Kólumbus "fann" eyjuna árið 1494 og tókst Spánverjum að útrýma innfæddum á skömmum tíma. Jamaíka var spænsk nýlenda þangað til Bretar hertóku hana árið 1655. Eyjan fékk heimastjórn árið 1944, árið 1958 varð hún hluti af Sambandsríki Vestur-Indía og lýsti síðan yfir sjálfstæði árið 1962. Jamaíka tilheyrir Breska samveldinu og þar er töluð enska.
Heimildir og kort:
- Jamaica á Wikipedia.org
- Íslenska alfræðiorðabókin. Reykjavík: Örn og Örlygur, 1990.
- Statistical Institute of Jamaica
- Kort: CountryReports.org
Þetta svar er eftir nemendur í Háskóla unga fólksins, námskeiðum á vegum HÍ fyrir 12-16 ára ungmenni í júnímánuði 2009.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur9.6.2009
Efnisorð
Tilvísun
Kristófer Bergmann Skúlason og Una Kamilla Steinsen. „Hver er íbúafjöldi Jamaíku?“. Vísindavefurinn 9.6.2009. http://visindavefur.is/?id=52866. (Skoðað 18.6.2013).
Höfundar
Kristófer Bergmann Skúlasonnemandi í Háskóla unga fólksinsUna Kamilla Steinsennemandi í Háskóla unga fólksins




