Spurning
Hver er stærsti skóli landsins og hvað eru margir krakkar í honum?
Spyrjandi
Melkorka Mist Gunnarsdóttir, f. 1995
Svar
Á heimasíðu Hagstofu Íslands má finna margs konar fróðleik, meðal annars upplýsingar um fjölda nemenda í einstökum skólum á öllum skólastigum. Þegar þetta er skrifað, í lok maí 2009, eru reyndar ekki komnar upplýsingar um árið 2009 eins og spurt var um, þannig að svarið miðast við árið 2008.Að meðaltali voru um 250 nemendur í hverjum grunnskóla á landinu árið 2008 og var munurinn á fjölmennasta og fámennasta skólanum var 757 nemendur! Fjölmennasti grunnskólinn var Árbæjarskóli með 759 nemendur, en fámennasti skóli landsins árið 2008 var Finnbogastaðaskóli í Árneshreppi þar sem nemendurnir voru aðeins 2.

Hér fyrir neðan má sjá hverjir voru 10 fjölmennustu grunnskólarnir á Íslandi árið 2008.
| Skóli | Fjöldi nemenda |
| Árbæjarskóli | 759 |
| Varmárskóli | 714 |
| Rimaskóli | 693 |
| Seljaskóli | 684 |
| Lágafellsskóli | 672 |
| Vallaskóli | 657 |
| Grunnskóli Vestmannaeyja | 638 |
| Grunnskóli Seltjarnarness | 607 |
| Grundaskóli | 587 |
| Lindaskóli | 561 |
Eins og við er að búast eru langflestir fjölmennustu grunnskólarnir á höfuðborgarsvæðinu en þrír skólar utan þess komast þó á þennan lista. Það eru Vallaskóli á Selfossi, Grunnskóli Vestmannaeyja og Grundaskóli á Akranesi.
Þess má geta að árið 2008 var næstum því helmingur allra sveitarfélaga á Íslandi, alls 38, fámennari en Árbæjarskólinn.
Eflaust fyndist nemendum úr þessum stærstu skólum landsins skrýtið að koma í fámennustu skólana þar sem fjöldi nemenda nær ekki þeim fjölda sem myndar bekk í stóru skólunum. Eins og áður sagði var Finnbogastaðaskóli með fæsta nemendur árið 2008. Þrír aðrir skólar voru með færri en 10 nemendur, í Grunnskólanum í Grímsey voru 7 nemendur, 8 í Grunnskólanum í Hofgarði og 9 í Grunnskólanum í Svalbarðshreppi.
Í þessu svari var gert ráð fyrir að átt væri við grunnskóla. Til gamans má geta þess að fjölmennasti framhaldsskólinn, Fjölbrautarskólinn í Ármúla, var með 2.914 skráða nemendur. Langfjölmennasti skóli landsins var þó Háskóli Íslands með 11.847 skráða nemendur árið 2008.
Frekara lesefni á Vísindavefnum:
- Hvað eru margir skólar í Reykjavík? eftir ÍDÞ
- Reykjavíkurborg. Sótt 27. 5. 2009.
Upprunalega hljóðaðið spurningin svona:
Hver er stærsti skóli á landinu árið 2009? Hvað eru margir krakkar í honum?
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur27.5.2009
Tilvísun
EDS. „Hver er stærsti skóli landsins og hvað eru margir krakkar í honum?“. Vísindavefurinn 27.5.2009. http://visindavefur.is/?id=52769. (Skoðað 19.6.2013).
Höfundur
EDS




