Spurning
Hvað getið þið sagt mér um Indland og höfuðborg þess?
Spyrjandi
Guðjón Sigurður
Svar
Indland er í lýðveldi í Suður-Asíu, en það fékk sjálfstæði frá Bretum árið 1947. Heildarflatarmál Indlands er 3.287.590 km2 sem er heldur minna en þegar landið var undir stjórn Bretlands. Búrma, sem nú kallast Mjanmar, klofnaði frá Indlandi árið 1937 og Pakistan skildi sig frá landinu árið 1947. Árið 1971 klofnaði Bangladess svo aftur frá Pakistan.Höfuðborg Indlands er Nýja-Delí sem er hluti af héraðinu Delí. Á höfuðborgarsvæði Nýju-Delí búa um 13,8 milljónir manna.
Mikil stéttaskipting er í Indlandi og lífsgæði flestra þegna landsins eru ekki eins best væri á kosið. Þar má helst kenna um miklum fólksfjölda sem skipta þarf takmörkuðum auðlindum á milli sín, en Indland er næstfjölmennasta ríki heims (á eftir Kína) og þar býr um einn sjötti hluti alls mannkyns.
Frekara lesefni á Vísindavefnum
- Fyrir hvað er Mahatma Gandhi svona frægur? eftir Sævar Helga Bragason.
- Getið þið sagt mér eitthvað um dýralíf og helstu dýrategundir á Indlandi? eftir Jón Má Halldórsson.
- Hver er vinnutími Indverja? eftir JGÞ.
Heimildir og mynd
- New Delhi. Wikipedia, frjálsa alfræðiorðabókin
- India. Britannica Student Encyclopedia.
- India. Encyclopædia Britannica Online.
- Myndin er af Peace Poles and Flags.
Þetta svar er eftir nemendur í Háskóla unga fólksins, námskeiðum á vegum HÍ fyrir 12-16 ára ungmenni í júnímánuði 2005.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur2.8.2005
Flokkun:
Tilvísun
Arnór Már Arnórsson og Þorsteinn Baldvin Jónsson. „Hvað getið þið sagt mér um Indland og höfuðborg þess?“. Vísindavefurinn 2.8.2005. http://visindavefur.is/?id=5171. (Skoðað 18.5.2013).
Höfundar
Arnór Már Arnórssonnemandi í Háskóla unga fólksinsÞorsteinn Baldvin Jónssonnemandi í Háskóla unga fólksins




