Spurning

Hefur einhvern tíma verið vatn á Mars?

Spyrjandi

Lilja Karen Björnsdóttir, f. 1997

Svar

Já, vatn hefur verið á Mars og það er þar enn þá. Frosið vatn er á báðum heimskautasvæðunum og er sífreri víða undir yfirborðinu. Ekki er vitað til þess að rennandi vatn sé á Mars.

Þegar Fönix-geimfarið lenti á Mars þann 25. maí árið 2008 fann það merki um vatn undir yfirborðinu. Grafið var ofan í jarðveginn og þá kom í ljós hörð ljósleit fyrirstaða sem reyndist vera ís. Fönix-geimfarinu var ætlað að athuga hvort heimskautasvæði Mars séu byggileg.

Hér sjást fyrstu myndirnar sem Fönix-geimfarið tók á Mars.

Á myndum sem teknar hafa verið af yfirborði Mars sjást fjölmargar rásir og önnur merki um að vatn hafi áður flætt þar um. Talið er að fyrir um 4 milljörðum ára hafi verið rennandi vatn og höf á Mars. Í svari Sævars Helga Bragasonar við spurningunni Hefur vatn fundist á einhverjum öðrum plánetum en jörðinni? segir þetta um ástæðuna fyrir því að vatn á Mars er núna frosið:
Ein ástæða þess að Mars er svo þurr er að braut Mars hefur talsverða miðskekkju sem kallað er, en þá er sporbaugurinn ílangur og fjarlægð reikistjörnunnar frá sól talsvert breytileg. Þetta hefur svo áhrif á veðurfarið, til dæmis á Mars. Meðalhitinn er á bilinu -55°C til -67°C, en hitinn fer líklega sjaldan yfir frostmark. Í gufuhvolfinu er að finna vatnsgufu.

Heimildir og frekara lesefni:
Myndband:
Þetta svar er eftir nemendur í Háskóla unga fólksins, námskeiðum á vegum HÍ fyrir 12-16 ára ungmenni í júnímánuði 2009.

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur15.6.2009

Tilvísun

Sæmundur Ragnarsson, Atli Einarsson og Jón Atli Tómasson. „Hefur einhvern tíma verið vatn á Mars?“. Vísindavefurinn 15.6.2009. http://visindavefur.is/?id=51500. (Skoðað 22.5.2013).

Höfundar

Sæmundur Ragnarssonnemandi í Háskóla unga fólksinsAtli Einarssonnemandi í Háskóla unga fólksinsJón Atli Tómassonnemandi í Háskóla unga fólksins



Leit


Vísindadagatalið

Sofia Kovalevskaya
(1850-1891)
( Fyrri Næsti )

Rússneskur stærðfræðingur, ein fyrsta konan í Evrópu sem lauk doktorsprófi og varð fullgildur prófessor. Rannsakaði m.a. hlutafleiðujöfnur, sporbaugsheildi og hringa Satúrnusar.

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans