Spurning

Af hverju stinga geitungar?

Spyrjandi

Birta og Guðbjörg, f. 1997

Svar

Geitungar, líkt og margar aðrar dýrategundir, eru búnir vopnum sem þeir beita bæði til fæðuöflunar og varnar. Þessi vopnabúnaður getur verið af ýmsum toga svo sem broddar eða eiturframleiðsla. Hjá geitungum eru það eingöngu kvendýrin sem geta stungið, það er drottningar og þernur, enda er broddurinn að uppruna til varppípa.

Þýskir geitungar.

Þeir fjölmörgu Íslendingar sem hafa orðið fyrir stungum geitunga undanfarin ár hafa á einhvern hátt ógnað geitungum, því þeir stinga menn aðeins í sjálfsvörn. Geitungarnir stinga okkur þess vegna ef þeim finnst að við ógnum þeim.

Frekara lesefni á Vísindavefnum:
Mynd:

Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur20.11.2008

Tilvísun

JMH. „Af hverju stinga geitungar? “. Vísindavefurinn 20.11.2008. http://visindavefur.is/?id=50294. (Skoðað 19.6.2013).

Höfundur

JMH



Leit


Vísindadagatalið

György Lukács
(1885-1971)
( Fyrri Næsti )

Ungverskur heimspekingur, bókmenntafræðingur og marxisti, einn af höfundum vestræns marxisma. Fjallaði m.a. um hlutgervingu, stéttarvitund og um raunsæi í bókmenntum.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans