Spurning
Hvað er Kínamúrinn mörg hænufet?
Spyrjandi
Unnur Níelsdóttir og Kistján Richter, f. 1996
Svar
Svarið við þessari spurningu fer eftir því hversu langt hænufetið er, og í lok svarsins verður gert ráð fyrir að það sé 3 cm. Hitt er svo annað mál að hænur geta tekið löng skref, til dæmis þegar þær hlaupa hratt og eru að flýta sér, þær geta meira að segja lyft sér aðeins á loft með vængjunum þó að þær fljúgi ekki. Ef þær eru á hraðferð þá taka þær ekki mörg skref. Ef hænurnar eru hins vegar aðeins að spígspora um þá taka þær nokkur skref fyrir hvern metra sem þær fara áfram. Hæna sem spígsporar um fer líka yfirleitt áfram, til hliðar og kannski líka fram og til baka.
Eins og fram kemur í svari við spurningunni Hvað er Kínamúrinn gamall og langur? Sést hann frá tunglinu þá er Kínamúrinn 7300 km langur. Í einum km eru 100.000 cm og í 7300 km eru þess vegna 730.000.000 cm. Ef hænufetið er 3 cm þá er Kínamúrinn 243.333.333 hænufet.
Frekara lesefni á Vísindavefnum:
- Hvað er Kínamúrinn gamall og langur? Sést hann frá tunglinu eftir Helgu Sverrisdóttur og Ulriku Andersson
- Af hverju geta hænur flogið og hreyft sig eftir að búið er að höggva af þeim hausinn? eftir JMH
- Hvort kom á undan, eggið eða hænan? eftir Sigurð S. Snorrason
Mynd:
Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur17.11.2008
Flokkun:
Tilvísun
JGÞ. „Hvað er Kínamúrinn mörg hænufet?“. Vísindavefurinn 17.11.2008. http://visindavefur.is/?id=50158. (Skoðað 23.5.2013).
Höfundur
JGÞ




