Spurning
Hvernig urðu apar til?
Spyrjandi
Hervar Hlíðdal Þorvaldsson
Svar
Apar eins og við þekkjum þá í dag urðu til með þróun sem staðið hefur yfir í mjög langan tíma.![]() |
Fornlíffræðingar hafa greint einn meginmun á þeim og hefðbundnum nagdýrum. Hann er sá að þeir höfðu framfótapar sem þeir notuðu til að þess að klifra og grípa utan um hluti en slíkt hafa nagdýr ekki, alla vega ekki eins vel þróað og frumstæðir prímatar. Þessi hæfileiki átti síðan eftir að þróast betur og ná “fullkomnun” hjá mannöpum svo sem mönnum (Homo sapiens), simpönsum (Pan troglodytes) og bonobo-öpum (Pan paniscus) sem eru náskyldir simpönsum. Með tímanum komu svo fram sannir prímatar sem við þekkjum í dag.
Þessi aðlögun að trjálífinu hefur tekið milljónir ára og breytingarnar í þá átt verið hægar. Kosturinn við fullkomna aðlögun að lífi í trjám var augljós, vörn gegn rándýrum og gnægtaborð matar í háum trjám regnskóganna (þar sem prímatar eru taldir hafa komið fram).
Nánar er fjallað um þetta efni í svari sama höfundar við spurningunni Hvað geturðu sagt mér um þróun apa? Á Vísindavefnum eru mörg önnur svör um apa, til dæmis:
- Eru apakettir og lemúrar sama dýrið?
- Hvað eru til margar apategundir?
- Hvað eru til margir órangútanapar í Afríku? En í heiminum?
- Eru til apar í Evrópu?
- Af hverju hafa ekki allar tegundir apa þróast alveg eins og menn?
Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur17.11.2008
Flokkun:
Tilvísun
JMH. „Hvernig urðu apar til?“. Vísindavefurinn 17.11.2008. http://visindavefur.is/?id=50142. (Skoðað 24.5.2013).
Höfundur
JMH







