Spurning
Hvað eru margir lítrar af vatni í sjónum?
Spyrjandi
Þórður Reynisson, f. 1996
Svar
Allt vatn á yfirborði jarðar og í andrúmsloftinu hefur upprunalega borist þangað sem eldfjallagufur úr eldgosum. Um hringrás vatnsins má lesa nánar í svari Sigurðar Steinþórssonar við spurningunni Hvaðan kemur vatnið?Í svari við spurningunni Hve margir lítrar af vatni eru í sjónum? eftir Ulriku Andersson er fjallað um vatnsmagn á jörðinni. Þar kemur fram að um 98% vatns á jörðinni sé að finna í höfunum. Í sama svari segir einnig að lauslega megi áætla að í höfunum séu alls:
1.234.800.000.000.000.000.000 lítrar.Það er svo stór tala að erfitt er að skilja hana.
Frekara lesefni á Vísindavefnum:
- Hvaðan kom hafið? eftir Sigurð Steinþórsson
- Af hverju er sjórinn saltur? eftir JGÞ
- Af hverju sígur sjórinn ekki ofan í jörðina? eftir ÞV
Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur17.11.2008
Flokkun:
Tilvísun
JGÞ. „Hvað eru margir lítrar af vatni í sjónum? “. Vísindavefurinn 17.11.2008. http://visindavefur.is/?id=50131. (Skoðað 25.5.2013).
Höfundur
JGÞ




