Spurning
Voru eldgos algeng á ísöld?
Spyrjandi
Gísli Erlendur Marinósson, f. 1990
Svar
Þegar spurt er um hvort eitthvað sé eða hafi verið algengt fer svarið eftir því við hvað er miðað. Hér er gert ráð fyrir að átt sér við hvernig eldvirkni var á Íslandi á síðustu ísöld.Síðasta ísöld hófst fyrir um 2,6 milljónum ára og lauk fyrir um 10.000 árum. Það var þó ekki stanslaus vetrarkuldi allan þann tíma heldur skiptust á kuldaskeið og hlýskeið eins og lesa má um í svari Sigurðar Steinþórssonar við spurningunni Hvað er ísöld og hvenær myndast hún?
Það er ekkert sem að bendir til þess að eldgos hafi verið óalgengari á ísöld en þau eru í dag. Hins vegar eru uppi hugmyndir um að á því tímabili þegar ísöld var að ganga í garð hafi eldgosum fækkað vegna aukins þrýstings frá upphleðslu íss. Að sama skapi voru eldgos tíðari þegar ísöld lauk og þrýstiléttir varð vegna ísbráðnunar. Í stuttu máli:
| Ísöld gengur í garð | = | fækkun eldgosa |
| Ísöld stendur yfir | = | ástand eðlilegt |
| Ísöld lýkur | = | fjölgun eldgosa |
| Nútími | = | ástand eðlilegt |
Í bók Þorleifs Einarssonar Myndun og mótun lands má lesa um eldvirkni á ísöld. Þar segir meðal annars:
Þegar í upphafi ísaldar var eldvirknin einkum bundin við miðbik landsins og færðist, er á leið, á mjó belti suðvestan-, sunnan- og norðanlands og eru þar nú aðaljarðeldsvæði landsins. En auk þess voru allmikil eldsumbrot við utanverðan Skagafjörð og á Snæfellsnesi og hafa eldsumbrot haldist á síðarnefnda svæðinu fram á nútíma.Á hlýskeiðum runnu grágrýtishraun langar leiðir og oft langt út fyrir gosbeltin. Þessi hraun komu ýmist frá gossprungum, eldkeilum eða dyngjum. Dæmi um eldkeilur sem gusu á ísöld og eru virkar enn í dag eru Snæfellsjökull, Eyjafjallajökull og Öræfajökull. Dæmi um dyngjur sem mikil hraun runnu frá á þessum tíma eru Ok, Lyngdalsheiði og Mosfellsheiði.
Gosbergið varð ólíkt að ytri gerð eftir því hvort það kom upp á auðu landi á hlýskeiðum eða undir jökli á jökulskeiðum þótt kvikan væri hin sama.
Á kuldaskeiðum ísaldar mynduðustu hins vegar móbergsfjöll við gos undir jökli, ýmist móbergshryggir sem hljóðust upp á sprungum en náðu yfirleitt ekki upp úr jöklinum eða móbergsstapar sem hlóðust upp úr jöklinum. Þessi fjöll setja mikinn svip á landslagið enn þann dag í dag. Sem dæmi um móbergshryggi má nefna Sveifluháls og Jarlhettur en dæmi um móbergsstapa eru Hlöðufell og Herðubreið.
Á Vísindavefnum eru nokkur svör þar sem fjallað er um ísöld, til dæmis:
- Hvenær og hvernig myndaðist Mælifell á Snæfellsnesi?
- Hvernig varð Grímsey til?
- Hvers konar fjall er Búrfell í Grímsnesi? Er það hefðbundið móbergsfjall?
- Hversu gamlir eru mismunandi hlutar Íslands?
Ármanni Höskuldssyni eldfjallafræðingi á Jarðvísindastofnun HÍ er þökkuð góð aðstoð við gerð þessa svars.
Heimild og mynd:
- Þorleifur Einarsson, 1991: Myndun og mótun lands. Reykjavík, Mál og menning.
- Mats: Íslandsmyndasafn © Mats Wibe Lund.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur11.5.2005
Flokkun:
Tilvísun
EDS. „Voru eldgos algeng á ísöld?“. Vísindavefurinn 11.5.2005. http://visindavefur.is/?id=4996. (Skoðað 24.5.2013).
Höfundur
EDSlandfræðingur og starfsmaður Vísindavefsins




