Spurning
Hvernig og hvar vex ananas?
Spyrjandi
Þórhildur Orradóttir, f. 1988
Svar
Ananasplantan (Ananas comosus) er fræplanta af ættinni Bromeliaceae. Hún vex villt í Mið- og Suður-Ameríku en hefur verið flutt og ræktuð til nytja víða annars staðar svo sem til margra Asíu- og Afríkuríkja.Ananasplantan er með 30-40 stíf og safarík blöð sem mynda oft rósettulaga krans umhverfis þykkan og sterklegan stöngul. Hjá villtum afbrigðum myndast blóm efst á plöntunni sem með auknum þroska gildna og renna saman og mynda þannig ávöxt sem í daglegu tali er nefndur ananas. Ananasávöxturinn er fullmyndaður fimm til sex mánuðum eftir að plantan blómstrar. Ananasávöxturinn hjá ræktuðum afbrigðum er venjulega um eitt til tvö kg að þyngd en minni hjá villtum jurtum.
Elstu frásagnir af ananasplöntunni eru frá landkönnuðunum Kristófer Kólumbus, Gonzalo Fernández de Oviedo y Valdés og Sir Walter Raleigh. Raleigh fann villtan ananas í Vestur-Indíum þar sem innfæddir nýttu hann til matar- og víngerðar.

Ananasplantan (Ananas comosus) með vel þroskaðan ávöxt.
Portúgalar voru sennilega fyrstir til að flytja plöntuna út fyrir upprunaleg heimkynni þegar þeir fluttu nokkrar plöntur til ræktunnar á eyjunni St. Helen árið 1502. Þeir fluttu hana til Afríku fáeinum árum síðar og til Indlands um 1550. Fyrir lok 16. aldar voru menn farnir að rækta ananas á stórum svæðum í hitabelti Asíu og Afríku. Óhætt er því að segja að þessi ávöxtur hafi slegið rækilega í gegn.
Í dag er mest ræktað af ananas á Tælandi (um 20% heimsframleiðslunnar) en önnur stór ræktarsvæði eru á Hawaii-eyjum, Filippseyjum, Kína, Brasilíu, Mexíkó, Fílabeinsströndinni, Taívan og á Indlandi.
Frekara lesefni á Vísindavefnum:
- Getur verið að orðið ananas sé komið af orðinu bananas? eftir Guðrúnu Kvaran
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur8.4.2005
Flokkun:
Tilvísun
Jón Már Halldórsson. „Hvernig og hvar vex ananas?“. Vísindavefurinn 8.4.2005. http://visindavefur.is/?id=4876. (Skoðað 20.5.2013).
Höfundur
Jón Már Halldórssonlíffræðingur




